Sunnudagur, 18. júlí 2004
Ég er búin að þrífa barnaherbergið. Þetta er komið. Ekkert á gólfinu og sjö ruslapokar farnir í Sorpu. Geri aðrir betur.
Ég er samt ekki búin. Ég á eftir að þvo hauga af þvotti, ganga frá kössum ofaní geymslu o.s.frv., en stærsta átakið er búið. Já.. og svo er eiginlega aðal áskorunin eftir: að halda barnaherberginu hreinu áfram. Ég er ennþá reyklaus og satt að segja er ég að drepast núna, vegna þess að ég er vön að verðlauna mig þegar ég er búin að gera hluti með því að fá mér sígarettu. Af augljósum ástæðum langar mig í sígarettu akkúrat núna en ég er að átta mig á því á meðan ég er að skrifa þetta að ég nenni ekki að hlusta á þessa löngun. Mér finnst eins og ég sé ekkert reykingamanneskja lengur.. -einhvernvegin.
Í dag nenni ég ekki að þrífa. Ætla ég að gera eitthvað skemmtilegt. Ekki annað hægt þegar veðrið er svona. Fékk nóg af því að hanga inni í gær.
Já alveg rétt. Í gær tók ég mér pásu frá tiltekt og fór í bíó að sjá Shrek 2. Mér fannst hún ekkert spes framanaf en eftir hlé leiddist mér ekki. Dórið lagðist í flensu og komst ekki með svo ég fór ein. Mér fannst það fínt, fyrir utan það að mér leiddist smá í hléinu og þegar myndin var búin langaði mig að tala við einhvern um myndina, einhvern sem væri búin að sjá hana líka. Ég var samt alveg laus við tilfinninguna að vera ein og yfirgefin, vinalaust úrhrak bara af því ég var ein í bíó.
Þetta venst.
Í dag er Spiderman á dagskrá. Dórið ætlar að koma, ef hann verður búinn að ná sér sem ég efast um. Þá fer ég bara ein á Spiderman líka. Ég er orðin leið á að missa af öllum myndum í bíó bara af því ég finn engan til að fara með mér. Ekki ætla ég að fara að hringja í karlmenn sem hafa gefið mér upp númerið hjá sér því það veldur bara misskilningi. Kannski ekki eins stórum misskilningi og þegar ég þáði boð í bíó hjá strák í US, og þegar myndin var búin var hann að plana hvar við ættum að gifta okkur.. ég nenni bara ekki misskilningi núna. In any way, shape or form.
Shit og ég gerði mistök í gær. Ætlaði að hafa pizzu í matinn og pantaði hjá Dominos. Fór að sækja pizzurnar og sá að lítil pizza er lítil. Crap.
Hvað er þetta stórt? Sex tommu? Ég sem ætlaði að þrífa langt fram eftir nóttu og fá mér miðnætur pizzuleifar og chilla. Þegar ég kom heim mætti Jóhanna mér í stiganum og þegar hún sá pizzurnar flýtti ég mér að segja: "ekki skamma mig". Hún fór að hlæja. Ég bað hana líka að minna mig á þetta næst þegar við pöntum hjá Dominos. Maður er orðin gamall og gleyminn og það er ekki svo oft sem við pöntum pizzu núorðið..
Ég fór snemma að sofa og vaknaði fyrir allar aldir. Sem er ágætt. Vinna á morgun og svona...