Þriðjudagur, 20. júlí 2004
"I don't belong here, I feel it, don't you think I feel it! I can't do any of these vile things and I wouldn't WANT to."
Stundum vildi ég óska þess að ég væri karlmaður. Stundum velti ég því fyrir mér hvort ég sé algjör örviti. Stundum langar mig í ís. Stundum langar mig að fara að sofa, eins og núna. Ég er svo þreytt.
Ég er búin að elda, búin að taka niður þvott af snúrunum og ganga frá inní skápa, búin að hengja upp úr vélinni og setja í nýja. Það þýðir að ég er ekki að fara að sofa fyrr en eftir tvo tíma. Ég er búin að ganga frá eftir matinn og ég er búin að lofa Dodda að lesa fyrir hann í Skúla Skelfir bókinni þegar hann fer uppí rúm. Hann er að leika sér núna.
Ég er búin að drepa tvo geitunga síðan ég kom heim. Með innan við þriggja mínútna millibili - í sama glugganum. Helvítis geitungar. Ég þoli þá ekki.
Rétt í þessu sendi Soffi mér þetta upp úr þurru:
soffi says:
afhverju líður þér svona illa
Anna says:
illa?
soffi says:
já
Anna says:
fyrirgefðu, geturðu séð mig eða?
soffi says:
:D
Anna says:
í alvöru talað?
soffi says:
ok ekki illa
soffi says:
heldur pirr
Anna says:
var þetta bara svona shot in the dark?
Anna says:
hvað?
Anna says:
hvað var ég að gera?
soffi says:
bloggið
Anna says:
hvað?
soffi says:
svo mikið pirr, en nei, reyndar kemur mér ekki við
Anna says:
hvaða pirr?
Anna says:
hvaða blogg?
soffi says:
leit að "pirruð" skilar td. 10 bloggum
Ég er pirruð. Það verður ekki af mér tekið. Enda fjallar líklega 20% af blogginu mínu um vonlausar tilraunir mínar til að hætta að reykja. Það er mjög pirrandi.
Mig langar ekki í sígarettu en ég held ég loki mig samt inni í hálft ár. Just in case. Fari bara í vinnuna, Melabúðina og heim aftur. Hitti ekkert fólk sem ég var vön að reykja með, drekki vatn og borði fuglafóður.
Gefi frá mér allt áfengi (garanterað komment frá Ingó) og hætti að drekka í þetta hálfa ár. Nei vá! Bjartsýni! Minnst fimm ár ef ég á að geta fengið mér í glas og sleppt því að reykja.
Æi fuck it. Ég ætla að fara að lesa Skúla Skelfi og bíða svo eftir þvottavélinni. Ef ég þekki mig rétt verð ég glaðvöknuð klukkan tíu.
Eða ekki.