Sunnudagur, 18. júlí 2004
Af hverju geri ég aldrei það sem ég ætla að gera? Þetta statement er rugl. Ég geri yfirleitt það sem ég ætla að gera, en í kvöld gerði ég það ekki. Ég naglalakkaði ekkert, fann litla ramma sem ég keypti fyrir tveimur árum (eða lengur síðan) í Ikea og setti myndir í þá. Myndir af mér og krökkunum.
Á morgun ætla ég að hengja þá upp á vegg.
Í dag fórum við krakkarnir út í garð í vatnsslag. Það var hrikalega gaman. Við eigum hinsvegar bara tvær nothæfar vatnsbyssur svo við ákváðum að leggja alltaf eitt af okkur í einelti. Ég fékk næst verstu útreiðina, Doddi var blautur inn að beini því hann hleypur ekki alveg jafn hratt og við Jóhanna.
Það mun breytast. Býð ekki í að fara í svona leik þegar hann er orðin 11 ára. Það verður total bust.
Við eigum eftir að gera þetta aftur í sumar, það er á kristaltæru.
Ég er þreytt og ætla að fara að sofa. Ég er líka bloody annoyed en það er önnur saga.