Fimmtudagur, 15. júlí 2004
Ég er gjörsamlega búin að missa tökin á draslinu og er jafnvel að hugsa um að leggja mig.
Það sem í eina tíð einskorðaðist við barnaherbergið hefur breitt úr sér eins og krabbamein og því eina sem mér tekst að halda í horfinu er eldhúsið. Jafnvel þó ég hafi eldað mat þar í kvöld þá tók ég til eftir matinn, þurrkaði af borðunum og setti í uppþvottavél. Ég er nefnilega hrædd um að ef ruslið nær að smita eldhúsið líka endi ég á að henda mér fram af svölunum. Skilja eftir stutt kveðjubréf sem hljómar svona:
"Ég þoli ekki allt þetta drasl".
Nei. Eins og komið hefur fram bý ég á annarri hæð. Það verður engum meint af því að henda sér niður af svölunum hjá mér. Sérstaklega ekki eftir að ég henti fötum blaðamannsins fram af svölunum. Það yrði of mjúk lending.*
Nema ef maður væri svo óheppin að lenda með augað í herðatré. Úff, það gæti orðið ljótt. But on the plus side.. þá gæti maður bara safnað hári, hætt að þvo sér, fundið Nokia stígvél og víðar buxur, skræpótta mussu og gerst sjóræningi með lepp fyrir öðru auganu. Já eða fengið sér glerauga með spúkí mynd.
Ætli það sé hægt að fá glerauga sem væri með mynd öðrumegin af venjulegu auga og hinumegin t.d. kattarauga? Væri ekki kúl ef maður gæti snúið því og hrætt fólk sem t.d. fer fyrir framan þig í biðröð? Ég þarf að æfa hvæsið mitt betur.
Nei ég er uppgefin og hallast að því að hringja á flutningamenn, segja þeim að taka allt og henda í Sorpu, nema tölvunni minni og öllu sem henni tilheyrir. Byrja svo bara nýtt líf á gólfinu. Gæti það ekki verið soldið rómó bara? Hef tekið eftir því að fólk sem situr á gólfinu og borðar bollasúpur er oft miklu hamingjusamara en annað fólk. Allavega í auglýsingum. Hvað veldur þessu? Ætli maður verði þugnlyndur af því að sitja í mjúkum stólum?
Má maður spöklera..
*Fyrir vini og ættingja. Ég henti fötunum hans ekkert niður af svölunum, finnst rétt að taka það fram til að fyrirbyggja misskilning. Mér þykir vænt um hann og myndi aldrei gera svona lagað. Ég á það hinsvegar til að fabúlera svona á blogginu mínu.
Ég hefði líka getað sagt: Ég kveikti í fötunum útí grilli.