www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Done
Fimmtudagur, 08. júlí 2004

Var reyndar búin klukkan níu en ég hef verið upptekin við að vorkenna mér yfir sígarettuleysi og öðru tilfallandi síðan. Ef ég gef mér að með heilsusamlegra líferni muni ég drepast á afmælisdaginn minn þegar ég verð nítíu og átta ára, þá eru tveir reyklausir dagar down.. 23794 to go. Það er nú ekkert svo mikið...

Undur og stórmerki, explorer hrökk í gang áðan. Ekki gerði ég nokkuð til að hann virkaði aftur, skil ekkert í þessu.

Ég er búin að prufulesa þetta dót mitt, velja lög, skipta um skoðun, skrifa allt annað en það sem ég ætlaði að skrifa, velja ný lög og nú mun ég ekki breyta meir. -Þangað til í fyrramálið. Mögulega. Kannski. Ah.. sjáum til.

Málið er eiginlega að ég er orðin leið á því sem ég ætlaði að skrifa um. Hefði betur klárað það þegar ég byrjaði, en mér var strax farið að leiðast.. ég held að mér leiðist mjög auðveldlega. Samt ekki. Mér finnst þetta ekki leiðinlegt, það er ekki það.. mér finnst ég bara soldið leiðinleg. Kannski af því ég er búin að lesa þetta of oft. Dunno.

Ég er allavega komin í frí fram á mánudag.

OJ! Hvað haldiði að illfyglið hún systir mín hafi gert áðan? Hún hringir í mig frá París, eins og hún sé hálf grátandi og biður mig um að hringja í sig strax. Sem ég gerði, með hjartslátt dauðans og svo logandi hrædd að ég gat varla fundið símann hennar í minninu! Þegar hún svaraði sagði hún hikandi: "ehh Anna? Það gerðist smá slys.. " og svo kom þögn í eins og fimm sek.

Þetta eru lengstu fimm sek sem ég hef upplifað og fóru allar í að hugsa um hvað gerðist og hversu slösuð Jóhanna var. Ég var við það að fara að gráta þegar Júlía sagði :"ah.. nei ég er að djóka, það gerðist ekkert.. Jóhanna vill tala við þig".

Ég náði mér ekki að fullu fyrr en löngu eftir símtalið.

Í dag spurði mig ókunnugur maður hvort ég væri nýbúin að borða banana. Ég starði á manninn, var reyndar í símanum og gat ekki svarað honum. Hann kom aftur seinna og sagði að hann væri bara svo svangur og hann fyndi lykt af banana. Ég fann bananahýði í ruslinu seinna, þegar ég var farin að finna bananalykt sjálf. Hélt ég væri goin' crazy! Enda kannski ástæða til...

That's a wrap for today folks. I'm gonna hit the hey...


| anna | 0:02 |
comments

That was kind of fun, your sister is a real comedian. laughing
Did she went to France to go to some actor school or what? wink

Nr. 1 | posted by: Matthias | 8.07.2004 | 5:51:12 | [+] |

Ha haha ha weepy
ah...nýbú...in að borða...banana...

stundum er bara priceless að byrja daginn á að lesa bloggið þitt!!

Nr. 2 | posted by: tótalí | 8.07.2004 | 9:19:08 | [+] |

Aej sorry anna anna anna, eg bara vard! Thu thekkir mig... Annars vildi eg helst oska ad thad hefdi ordid slys a flugvellinum og honum lokad i svona viku svo mamma og Johanna vaeru bara fastar herna... Eg gerdi mer ekki grein fyrir thvi hversu einmanna eg var fyrr en eg fekk thaer i heimsokn. Nu graet eg bara... graet i koddana sem thaer notudu... O mig auma! weepy

Nr. 3 | posted by: Julia | 8.07.2004 | 15:59:30 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web