www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Dauðans matur
Föstudagur, 16. júlí 2004

Ég var í góðum fíling hér áðan með draslinu mínu þegar ég fann allt í einu hvernig sýkill stökk upp úr einum ruslapokanum og sogaðist upp í nefið á mér þegar ég dró andann. Maður er hvergi óhultur.

Stuttu síðar lagðist ég í sófann og sofnaði. Vaknaði aftur við það að Doddi var að strjúka á mér hárið. Fór með hann inn í rúm og sofnaði aftur.

Mér er illt í beinunum mínum, aðallega í mjaðmagrindinni og mjóbakinu og verkurinn leiðir niður í fætur og svo er mér illt í höfðinu og.. ég á svo bágt.

Mér er líka illt í fingrunum.

Ég er með hita og ég er ekki viss um að ég lifi þetta af so here goes.

Allar snyrtivörur fara til Júlíu. Hún getur svo séð um að henda þeim. Fötin mín þarf að passa uppá þangað til þau verða sett á safn sem ómetanleg heimild um veru mína á jörðinni og einhver þarf að setja copyright á allt sem ég hef skrifað. Líka innkaupalistann á ísskápnum. Ég er viss um að hann er snilld í einfaldleika sínum. Hver fær skuldirnar? Ég hlýt að vera með óráði því ég finn engan sem mér er nógu illa við í augnablikinu. Það lagast. Það bráir venjulega af fólki rétt áður en það hrekkur uppaf. Ég stóla á það. Bílinn vil ég stoppa upp og mamma má geyma hann í bílskúrnum. Það þarf að laga kúplinguna eitthvað, hún vill festast niðri. Allt rusl má fara í Sorpu en ég er ekki heldur viss um hver ætti að fá bækurnar mínar;
"How to build a human airplaine using glue",
"Is there sex after marriage?",
"Short people and their complexes",
"109 ways to use hairspray",
"Shit like that - a brief study of bowel movements",
"So you've decided to ruin your life? - a guide to the perfect wedding",
"Single and don't know your technology? - includes a detailed guide on how to use sms".
Bækur sem eru mér mikils virði og ég vona að þær hjálpi einhverjum eins og þær hafa hjálpað mér.

Að lokum vil ég að tölvan mín sé jörðuð hjá mér. Það yrði mér mikil huggun og vill einhver koma í veg fyrir að mamma láti setja "dó úr aumingjaskap" á legsteininn!!

Það má hinsvegar standa: "dó úr rusli" -eða drasli. Hvort er flottara?

Þetta er rugl. Djöfull er mér kalt.


| anna | 3:22 |
comments

ég myndi frekar nota dó úr rusli, eða dó í rusli

Nr. 1 | posted by: maja | 16.07.2004 | 9:04:31 | [+] |

ógó fyndið.

Nr. 2 | posted by: inga | 16.07.2004 | 9:52:46 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web