Þriðjudagur, 13. júlí 2004
Nú styttist í að ég fari í frí. Ég ætla að byrja fríið á að fara í the danger zone, pakka dóti í kassa og henda. Já, ég ætla að ráðast á barnaherbergið og taka til.
-Enda síðustu forvöð áður en þau koma heim þessar elskur. Ekki þýðir að gera þetta með þau hangandi yfir sér eins og hrægamma, spyrjandi: "ætlar þú að henda þessum ónýta kalli sem ég fékk með Smarties hólknum frá afa þegar ég var þriggja ára???". Þoli ekki svona spurningar. Verð reglulega viðskotaill og urra: "Já, ég ætla að henda honum. Það er einlægur vilji minn, hefur þú eitthvað við það að athuga? Áður en þú svarar skaltu átta þig á stöðu þinni í lífinu. Ég er mamma þín, you are at my command. Ég ræð! Na-na-na-na-na-na."
Nei ég segi bara svona. Ég hef skánað eftir að mér var skipað að lesa bókina "samskipti foreldra og barna" af dómaranum í fyrra. Nú er ég ljúf sem lamb og framkvæmi myrkraverk af þessu tagi þegar börnin eru að skemmta sér í sakleysi í sveitinni. Nú eða þá ég leigi mökk af vídeói og kaupi bílhlöss af nammi, handjárna þau saman og bind handjárnin við sófann, læsi mig svo inní barnaherbergi til að fá frið til skemmdarverka. Þau verða bara svo tjúnuð af sykrinum að ég er hætt að nenna því. Auk þess er ekkert grín að smygla ruslapokunum út með þau í sófanum.
Það hefur oft verið þörf, en nú er nauðsyn. Þegar ég er hætt að komast í fataskápana.. þá þarf að gera eitthvað. Ég þarf víst að vera í fötum í vinnunni. Ágætis samstarfsmaður minn benti mér á þessa staðreynd þegar ég mætti einn daginn í bikiní buxum og bol, einum sokk og klossum. Það var einmitt daginn eftir að ég prufaði að taka svefnlyf klukkan fjögur um nótt. Ég varð timbruð um hádegi og fékk lánaða kápu til að fara heim og klæða mig. Hef ekki tekið svefnlyf síðan.
Það er frekar stutt síðan ég tók barnaherbergið í gegn og augljóst að ég hefði mátt vera miklu meira brútal. Minnir mig á.. mig vantar svarta ruslapoka líka.
Þar sem börnin eru ekki heima er tilvalið að byrja í kvöld. Ef ég á að vera raunsæ, sem mér leiðist gífulega að vera.. þá gæti ég klárað þetta fyrir hádegi á morgun. Þ.e. ef ég sleppi því að sofa.