www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Bíó
Laugardagur, 10. júlí 2004

Ég er að spá í að fara ein í bíó. Þetta er eitthvað sem ég hef gert einu sinni á ævinni áður og það var þegar ég fór ein að sjá myndina The Three Amigos. Rifjaðist upp fyrir mér um daginn, þegar ég var að leita að lögum fyrir þáttinn minn og rakst á hljóðfælinn úr myndinni þar sem runninn syngjandi fer á kostum. Það var einmitt hann sem fékk mig til að fara aftur á myndina.

Ég hló svo mikið að mér var bókstaflega illt - í bæði skiptin.

Stundum langar mig í bíó bara af því mér leiðist, eða ég er einmana og vil ekki vera í heiminum. Þegar manni líður þannig er banalt að fara á vonda mynd. Held að Spiderman sé góð..

Come to think of it.. þá held ég að ég finni bara þennan hljóðfæl og hlusti á hann áður en ég fer. Það minnkar líkurnar á total bömmer ef myndin er crap.


| anna | 20:27 |
comments

Three amigos er einhver mest fyndna mynd sem ég hef séð um ævina. Runna atriðið alveg óborganlegt. Nú tek ég þessa mynd á leigu fljótlega. Er laugardagskvöld og mín eitthvað að spá í að fara ein í bíó. ???? WHY???

Nr. 1 | posted by: þóra | 10.07.2004 | 23:29:30 | [+] |

Eeeeeeelska syngjandi runnann.

Man ekki laglínuna en en það rifjaðist upp fyrir mér að einhverntíma las ég að Randy Newman væri syngjandi runninn. Spúkí, ekki satt ?

Nr. 2 | posted by: Hexia | 11.07.2004 | 15:44:40 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web