Fimmtudagur, 08. júlí 2004
Það er örstuttur playlisti sem ég spila á kvöldin þegar ég er að koma Dodda í ró og hann er farinn að sofna á ótrúlega stuttum tíma. Í gærkvöldi var ég annars hugar, að hugsa um handritið mitt, svo ég gleymdi að setja playlistann á þegar ég var að hátta Dodda. Þegar hann var búinn að liggja í rúminu í nokkrar mínútur heyrði ég hann kalla fram: "mamma, spila lögin!".
Ég setti playlistann á og í lúppu, eins og venjulega, nema ég gleymdi þessu á allt kvöldið og reyndar alla nóttina. Þegar ég vaknaði í morgun var Doddi kominn upp í rúm til mín og hann hafði lokað hurðinni fram. Í svefnrofunum heyrðist mér einhver vera frammi að syngja og mér fannst það yndislegt. Ég hefði sumsé ekkert á móti því að búa með Sting, ef hann nennti að vekja mig með söng á hverjum morgni.
Nú er hinsvegar komin tími á að skipta út lögum fyrir Dodda. Mér líst svakalega vel á þessi.