Laugardagur, 03. júlí 2004
Einhverra hluta vegna vissi ég að ég kæmist í aðeins betra skap ef ég leigði mér Adaptation, fengi mér jarðaberjashake og nýtt naglalakk. Hvað ég er einföld sál.. leitin að öðru eins.
Vill til að naglalakkið sem ég keypti útí apóteki veitti mér sérlega mikla ánægju þar sem það er fallegt eftir að ég var búin að lakka á mér neglurnar með því. Ekki öll naglalökk sem eru bæði jafn falleg í flöskunni sem maður kaupir þau í og þegar þau eru komin á neglurnar á manni. Það er nú ljóta upplifunin. Að kaupa geðveikislega fallegan lit og svo.. þegar maður naglalakkar sig með honum.. gerir maður sér grein fyrir því að það er ekkert mannlegt við þennan lit og maður lítur meira út eins og geimvera með fyrirtíðarspennu eða eitthvað þaðan af verra. Ég hef séð geimveru með fyrirtíðarspennu. Það var ekki fallegt.
Ég varð reyndar fyrir þó nokkrum vonbrigðum með shake-inn, enda var hann illa shake-aður og að sjúga hann upp í gegnum rörið var eins og að stinga röri í blauta steypu, bíða eftir að hún harðnaði og byrja svo að sjúga. Mér er illt í kinnunum eftir þessa þrekraun og ég er ekki frá því að ég hafi sprengt nokkrar æðar í augunum, en nú er þessi fíni herbergishiti sem er inni hjá mér að mýkja hann allan upp svo þetta reddast fyrir horn.
Adaption. Vá. Það var nóg að taka hana á leigu. Mér líður miklu betur og ég er ekki byrjuð að horfa. Magnaður andskoti.