Það sem mig dreymir...
Mánudagur, 26. júlí 2004
Í nótt dreymdi mig að ég fékk sms frá manni, manni sem ég þekki. Í sms-inu stóð "já komdu í heimsókn". Skyndilega var ég komin heim til hans, allt á sínum stað, nema... núna átti hann sætan hund sem ég man ekki hvað hét. Hann sagði hundinum að bíta mig, en skammaði mig svo fyrir að meiða hundinn, þegar ég var að klappa honum. Allt í einu vorum við komin í bíltúr og jafn skyndilega vorum við aftur komin heim til hans. Við elskuðumst og það var dásamlegt... svo bað hann mig að fara en fyrst yrði ég að borga honum fyrir sprite-ið sem hann keypti fyrir mig í bíltúrnum. Ég sagðist vera peningalaus og að ég yrði að borga þetta daginn eftir. Hann var allt annað en sáttur, talaði eitthvað um vexti, verðbólgu og uppgufað góðæri. Þegar ég var að kveðja hann sáum við nokkra menn sem voru að fara í bíl, einn fór sjálfviljugur í skottið á bílnum og annar lokaði hann inni. Svo keyrði bíllinn í burtu...
btw. þessi síða er hrein snilld: despair.com. Datt inn á hana þegar ég var að skoða kjarri.com
Ég verð að stela þessum texta því þetta er brill:
"Customer Disservice™
We're not satisfied until you're not satisfied, and that's a promise.
In an effort to further reduce our personal interactions with customers, we've added our revolutionary Troubled Ticketing™ system. If you would like to report a problem, simply click the link below, and complete the accompanying Problem Report. After firing the responsible Little Person, their replacement will get back to you as soon as is convenient for us. "
ps. ef þið fylgið linknum og farið á síðuna, takið eftir customer suggestion boxinu. Eins og ég segi.. knowing I'm repeating myself.. -brill.