Mánudagur, 14. júní 2004
Doddi er á sundnámskeiđi hjá leikskólanum. Á hverjum degi höfum viđ fariđ međ sundpokann hans í leikskólann og á hverjum degi kemur hann međ hann heim aftur. Ţangađ til á fimmtudaginn. Ţá var dótiđ hans ekki í hólfinu. Eftir dauđaleit var augljóst ađ pokinn var ekki á leikskólanum svo viđ fórum heim. Á leiđinni heim fór Doddi ađ gráta. Sundpokinn er í uppáhaldi ţví stóri frćndi hans gaf honum og syni sínum svona poka sem eru merktir BYKO. Doddi heldur svo upp á pokann ţví litli frćndi hans á alveg eins.
Ég reyndi ađ hugga hann en hann bara grét og grét svo ég endađi á ađ halda á honum heim.
Hann jafnađi sig en er samt ađ vona ađ hann finni pokann sinn aftur.
Ef ţú veist um bláan taupoka merktan BYKO sem inniheldur sundskýlu, handklćđi, sundgleraugu og svarta sundhettu.. vilt ţú ţá skila honum í Vesturbćjarlaugina?
Til ćttingja og vina sem hafa áhyggjur af ţví ađ mađur ađ nafni Lárus sitji um mig:
Lárus er ekki til. Ég veit hver ţađ er sem er ađ kommenta á síđuna mína í hans nafni og sá ađili er meinlaus. Hann er bara ađ stríđa mér, hann vissi ekki ađ ég vissi hver hann var - svo ég svarađi honum til ađ stríđa honum til baka.
Lárus: Game over.
Dagurinn í dag er búinn ađ vera meira en lítiđ furđulegur. Ég er búin ađ fá hvert símtaliđ á fćtur öđru í vinnuna frá furđulegu fólki, m.a. einum sem vildi kaupa Internetiđ. Ţessi mađur á ekki tölvu.
Ţađ er augljóslega mánudagur.