www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Sundpokinn fundinn!
Þriðjudagur, 15. júní 2004

Doddi var ekkert lítið kátur þegar ég kom að sækja hann í dag. Hann bað mig um að loka augunum, sem ég gerði, og ég fann að hann fór eitthvað í burtu en kom strax aftur og strauk yfir öxlina á mér og sagði: "þú mátt opna núna". Þarna stóð hann með sundpokann sinn og ljómaði af gleði. Þessi dúlla var búin að fela pokann til að koma mér á óvart þegar ég kæmi að sækja hann. Hann er svo frábær.

Í dag fékk hann að fara heim með myndirnar sem hann hefur teiknað í vetur í leikskólanum. Það er svo gaman og ég bara verð að birta tvær sem mér finnast æði.

Þá er hér fyrst mynd sem Doddi teiknaði af sér og Eydísi, kærustunni sinni. Þetta er svo sæt mynd. Ef þetta eldist ekki af honum á ég eftir að þurfa að fá mér rafmagnsgirðingu og varðhunda til að varna kvenfólki inngöngu þegar hann verður kominn á þann aldur.

Úff.. það verður fjör.


Mynd númer tvö ber nafnið "froskur í mannabúningi". Ég er nú ekki frá því að þetta líti út eins og froskur.. í mannabúningi!


| anna | 17:34 |
comments

Ó mæ god - ég er að sjá þetta núna fyrst. Þessar myndir eru ÆÐI smile

En mér finnst þú nú alveg full efins um að þetta samband endist hjá þeim what Krúttlegt samt

Nr. 1 | posted by: María | 17.06.2004 | 21:39:55 | [+] |

Hvers vegna heldurðu að ég ætli að fá mér girðingu og varðhund? Erum við ekki búin að velja þau saman? wink

Nr. 2 | posted by: anna | 18.06.2004 | 7:21:23 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web