Laugardagur, 12. júní 2004
Já.. eftir hádegi í dag komst ég loksins í zone og vann handritið fyrir RÚV. Ég er svo gott sem búin, á eftir að laga til restina aðeins, lögin komin svo ég er all set í þeirri deild. Þarf ekki að spá í það meir. Annars hringdi ég í mömmu og las það sem ég var komin með þarna fyrst og hef ákveðið að fara með símtól í stúdíóið því ég les þetta mikið betur upp þegar mér finnst ég vera að tala í síma. Merkilegt.
Það breytist vonandi. Glatað að vera svona furðulegur til lengdar.