Þriðjudagur, 08. júní 2004
Ég passa í þær! Ég passa í þær! Ég passa í þær!
Eða.. get troðið mér í þær og rennt upp ef ég ligg á gólfinu og toga af öllum kröftum. Doddi fór reyndar að gráta því hann hélt ég væri í flogakasti, en ég náði að róa hann niður með því að renna aðeins niður svo ég gæti talað, já og að halda tungunni uppí mér gerði þetta minna flogaveikislegt. Þurfti svo hjálp við að standa upp en börnin eru svo ósvífin að þau létu mig liggja á gólfinu í korter á meðan Jóhanna var að klára spennandi borð í playstation. Ég fór bara í slökun á meðan, sem var talsverð þraut þar sem ég get lítið andað þegar ég er búin að renna upp. Get ekki setið heldur, þess vegna stend ég hálf bogin núna við tölvuborðið og pikka.
Ég er samt svo hamingjusöm. My skinny pants. Þær eru samt ekki nógu sjúskaðar fyrir tískuna í dag. Best að ná sér í rifjárnið og fara að föndra...