www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Símtal til Frakklands
Mánudagur, 14. júní 2004

Anna: Júlía?
Júlía: Já
Anna: Hva.. ertu bara með eigin síma þarna?
Júlía: Nei þetta er bara nýtt símakort
Anna: Ó..
Júlía: Mér leiðist svoooo
Anna: Hvaða, hvaða... áttu nema nokkrar vikur eftir?
Júlía: Ég kem heim um miðjan ágúst
Anna: það er soldið langt
Júlía: Og mér gengur svo illa að læra málið
Anna: Geturðu ekki kynnst fólki sem kennir þér þarna?
Júlía: Nei það eru allir svo leiðinlegir
Anna: Getur það verið?
Júlía: Já, í dag leiddist mér svo mikið að ég fór í saumastofurnar og bauð fram vinnu mína ókeypis
Anna: Vá þér leiðist. Þetta er svakalega ólíkt þér
Júlía: JÁ! En ég er hætt að reykja
Anna: Það er frábært. Hættir þú þegar þú fórst út?
Júlía: Nei í gær
Anna: [deyr úr hlátri] Ég skil, þú ert sem sagt ekki búin að ná 24 tímunum, getur verið að við séum eitthvað skyldar?
Júlía: [hlær] Nei er það?
Ritskoðað
Júlía: Ég var svo skemmtileg einu sinni.. hvað gerðist?
Anna: Júlía, þú hljómar eins og þú sért fimmtug.
Júlía: Guð Anna, þú veist hvað ég er myrkfælin
Anna: Hvað heyrðist þér ég eiginlega segja?
Júlía: Ég vakna þrisvar upp á nóttunni
Anna: Hvað heyrðist þér ég segja?
Júlía: Þú sagðir að ég hljómaði eins og ég væri fimmtug
Anna: Og hvað kemur það myrkfælni við?
Júlía: Guð Anna ég ligg á kvöldin og finnst húðin á mér skorpna upp, fimmtug Anna! Fimmtug!
Anna: [hlær] Júlía, þú ert alveg ógeðslega skemmtileg, þú bara veist ekki af því
Júlía: Nei ég veit ekki af því
Júlía: Nú langar mig í sígarettu
Anna: [hlær]

Mér þykir svo vænt um hana systur mína og það er svo gaman að tala við hana. Skemmtilegasti hlutinn er auðvitað ritskoðaður.. alltaf þannig.


| anna | 22:14 |
comments

Systur eru æði. Mín er í heimsókn núna. Hún er næstum eins mikil dúlla og ég angel

Nr. 1 | posted by: Harpa | 15.06.2004 | 2:33:05 | [+] |

Stóru systur eru náttúrlega bestar í svona málum! wink

Nr. 2 | posted by: anna | 16.06.2004 | 10:53:55 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web