Fimmtudagur, 10. júní 2004
Það er black hole í íbúðinni minni. Það gleypir hluti sem mig vantar og ég leita að. Núna síðast.. lítil bók með mikilvægum upplýsingum og ég finn hana hvergi.
Ég velti því fyrir mér hvað í fjandanum er að gerast! Hvert hverfa þessir hlutir? Ég man ég sá hana á borðstofuborðinu síðast og ég tók hana upp og ég setti hana einhvert.. en ég man ekki hvert og nú lítur út fyrir annað innbrot af minni hálfu því ég er búin að framkvæma "eðlilega" leit, búin að reyna að tengja þessa bók atburðum.. sem er erfitt því ég var með hana í höndunum kvöldið sem við fórum út. Kvöldið sem ég var búin að vaka endalaust og ég bara man ekki hvað ég gerði við hana, en mig rámar í að það hafi verið góður staður.
Góður staður.
Ætla mætti að góður staður væri staður sem maður fyndi hlutinn seinna á þegar maður þarf að nota hann. En nei. Engin góður staður fyrir mig. Engin góður staður hér í íbúðinni. Bara black holes.
Ég er gjörsamlega að brjálast í skapinu yfir þessu því ég hreinlega nenni ekki að rústa íbúðinni fyrir þessa bók en ég eiginlega verð að gera það. Og það er gjörsamlega óþolandi. Sérstaklega með minninguna um skólaglósubókina forðum. Þá hafði innbrotsleit ekkert í för með sér nema annoying tiltekt þegar henni var lokið.
Hvað hef ég gert við þessa bók?????
Svo er ég á túr, til að toppa það. Ég er gjörsamlega að fara á límingunum af pirringi og geðstirðleika.
Ég skil þetta ekki. Það er ekki eins og þetta sé stór íbúð. Hvernig í fjandanum fer ég að þessu???
Update:
Ég er búin að finna bókina. Samt er ég alveg jafn pirruð og áður.