Miðvikudagur, 23. júní 2004
Í dag fór ég til læknis og kom þaðan 23 þúsund krónum fátækari. Læknirinn fór yfir mikilvæg atriði við mig, sagði að það væri bannað að veita inngöngu í ESB næstu fimm daga en það væri í lagi að ná í alla pappíra, fylla þá út og jafnvel leggja inn umsókn, en bara ekki veita inngöngu.
Húmor.. ómissandi factor í þessu samhengi.
Því næst spurði hann mig hvort ég væri ástfangin þessa dagana. Ég brosti til hans. "Náðu þér í einhvern sem þér finnst æðislegur og sem á skilið stelpu eins og þig, það er fullt af allskonar stelpum þarna úti, en þær eru ekki til margar eins og þú - á lausu", bætti hann við þegar hann tók í höndina á mér þegar ég var á leiðinni út.
Ég hef aldrei séð eftir peningum sem ég borga þessum manni.
Verst.. ég held að það sé fullt af allskonar strákum þarna úti.. en hvað ætli margir af þeim eigi skilið stelpu eins og mig?