www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Mohitos
Sunnudagur, 27. júní 2004

Í gær fór ég á mohitos með Þóru. Úff hvað það var gaman að dansa. Ekki fyndið. Þetta var samt furðuleg upplifun. Ég stóð við barinn þegar maður spurði mig: "í hvaða heimi ert þú?" Ég sagðist ekki vera af þessum heimi. Hann spurði mig hvaðan ég væri. Ég svaraði: "plútó". Hann talaði um Mikka mús og eitthvað fleira sem ég man ekki. Ég svaraði honum ekki, brosti bara. Þá spurði hann mig: "hvað er það skemmtilegasta sem þú hefur fundið á jörðinni síðan þú komst frá plútó?" Ég hugsaði mig um í smá stund, horfði svo beint í augun á honum.. og svaraði.. "karlmenn". "Gott svar", sagði hann.. eins og hann hefði átt von á öðru.

Vinur hans keypti fyrir mig og Þóru í glas. Hitti hann þegar ég fór á dansgólfið. Hann vildi dansa við mig. Ég dansaði við hann, en samt.. hann var eins og e.k. sveimhugi. Var alltaf að segja að ég væri svo þetta og svo hitt. Nice things really en svo ráfaði hann í burtu. Skipti ekki máli. Ég ætlaði hvort sem er bara að dansa við hann. Ég man ekki hvaða lag.. en eitthvað íslenskt var sett á. Hann settist. Nennti ekki að dansa við það. Ég fór aftur á barinn, langaði í vatn. Skyndilega var maður mér á hægri hönd, sem vildi kaupa handa mér í glas. Dansarinn var kominn mér á vinstri hönd og vildi líka kaupa handa mér í glas. Mér fannst þetta óþægilegt.

Þóra fór með mig á annan stað. Ég fór beint á barinn til að ná mér í vatn. Upp að mér kom maður sem talaði ensku og.. eins og úr teiknimynd. Hann var ferlega fyndinn. Ég svaraði honum á ensku, svona "Emma Thompson" ensku. Hann hélt að ég væri breti. Þangað til ég svissaði yfir í bandarískan hreim. "Hvað ert þú eiginlega" spurði hann hlæjandi. Hann hló ennþá meira þegar ég fór yfir í ensku með frönskum hreim. Ég virðist skipta um karakter eftir því hvernig ensku ég er að tala.. í franska dæminu horfi ég voða mikið spyrjandi á viðmælanda minn með galopin augu, sem Emma Thompson verð ég ferlega dönnuð, eiginlega pompus og sem kani verð ég últra cool og kæruleysisleg. Magnað. Rifjaðist líka upp fyrir mér hvað þetta getur verið gaman. Ótrúlegt hvað fólk segir um mann þegar það veit ekki að maður skilur það sem það er að segja.

Ég labbaði heim úr bænum. Á leiðinni sá ég kött. Ég kallaði á hann og bað hann að fylgja mér heim. I'ts the sickest thing.. hann fylgdi mér alla leiðina. Upp að dyrum.


| anna | 12:34 |
comments

ég á kisu sem að fylgir mér útum allt, í vinnuna, út í búð. hún hefur meira að segja fylgt mér og dóttur minni niður laugarveginn, að tjörninni, beið á meðan við gáfum öndunum (og reyndi ekki að veiða þær, hún er veiðikötturinn ógurlegi sko) og labbaði svo með okkur heim.

þegar nágrannarnir sjá okkur á rölltinu, okkur mæðgurnar og kisu spurja þau alltaf hvort að ég sé að viðra köttinn. ég svara þeim alltaf játandi, maður þarf að viðra þessi dýr líka alveg eins og sjálfan sig.

Nr. 1 | posted by: litlaskvis | 27.06.2004 | 15:35:23 | [+] |

Hey, svo komstu ekkert á Gaukinn? Það var ágætis band þar...svona sveitaballastemmning. Ég var þar...að vinna til 3, svo bara á fyllirí drunk

Nr. 2 | posted by: Kristó | 27.06.2004 | 16:58:50 | [+] |

Já þetta var rosalega skemmtilegt hjá okkur. Þú ert svona karlamagnet. embarassed.
Takk fyrir kvöldið og svo er það bara kaffihúsið næst. Hef ekki úthald í mörg svona kvöld. Er með harðsperrur í vöðvum sem ég vissi ekki að ég hefði weepy

Nr. 3 | posted by: þóra | 27.06.2004 | 17:03:25 | [+] |

Ótrúlega handsome glasaveitarinn. Svona ekta þín týpa sko. thumb up

Nr. 4 | posted by: þóra | 30.06.2004 | 18:51:11 | [+] |

Kræst.. Það er ekkert sorglegra en það þegar konur fara að monta sig af þeirri athygli sem þær fá.

Pæst, þá eru athyglissjúkar stelpur skemmtilegri,
trúi þessu ekki weepy .

Nr. 5 | posted by: Úllen Dúllen | 5.07.2004 | 13:50:58 | [+] |

Nei nei, svo sem ekki. Fannst bara Anna.is eitthvað svo innilega ekki neitt að reyna að vera neitt meira en hún var, þó það væri bara fucking bað og bað, stundum blaðamaður. Svo skildurðu wave, er kannski bara hrædd um að þú tapir baðkonunni sem átti það til að hugsa til fortíðar og naglalakka sig. Hrædd um að þú hættir að vera þú, hrædd um að þú tapir þér og finnir bað/naglalakk aldrei aftur. Úff, sorrý, er bara að fjasa eitthvað. Over and out.

Nr. 6 | posted by: Úllen Dúllen | 5.07.2004 | 15:31:23 | [+] |

Nei þetta er rétt hjá þér Úllen. Ég þarf að finna þá konu, þessa sem var alltaf í baði og að naglalakka sig. Ekki það.. ég er endalaust í baði, og naglalakka mig eins og óð kona.. bara hætt að blogga um það.

HVAÐ GERÐIST? what

Nr. 7 | posted by: anna | 5.07.2004 | 15:36:47 | [+] |

Ertu að tala niður til mín shy?
Hvað með það, áfram KR!

Nr. 8 | posted by: Úllen Dúllen | 5.07.2004 | 15:45:11 | [+] |

Nei ég meinti þetta ekki þannig, bið þig að fyrirgefa ef það kom þannig út.

Þetta er einmitt rétt hjá þér. Ég hef eiginlega komist að þeirri niðurstöðu að það sé miklu farsælla að blogga þegar maður gerir lítið annað en að vinna, éta, sofa.. og gerir grín af því.. en þegar maður er að gera allt sem maður blúsaði yfir að geta ekki gert.

Maður fer á útopnu og ruglast. Þó er ég ekki orðin það rugluð að ég viti ekki hvað ég er að gera. Næ þeim hæðum líklega ekki úr þessu. Hjúkk alveg.

Ég sakna mín líka og mun í kvöld fara inn á bað og leita rækilega. Ég hef kannski misst mig þarna undir vaskinn, eða á bak við klósettið. Ég vona að ég sé ekki í klósettburstadraslinu.. oj bara..

Fer í bað í kvöld og reyni að endurupplifa fílinginn.. hvernig það var þegar ég og baðið urðum eitt og ég flaut eins og flóðhestur í vatninu. Ég mun reporta samviskusamlega, enda.. ég held að ég geri þetta að almennilegri baðferð. Með mjúsík og alles! colgate

Já og áfram KR! Hvernig er staðan annars?

Nr. 9 | posted by: anna | 5.07.2004 | 15:57:08 | [+] |

Ég veit, ég skil.
Veit þó lítið um stöðuna, aldrei þessu vant hef ég ekki mætt á neinn leik.

Blessuð góða, ekki pæla of mikið, lífið kemur í ljós og það kemur ný leiktíð eftir þessa leiktíð.

Áfram KR!

Nr. 10 | posted by: Úllen Dúllen | 5.07.2004 | 17:29:12 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web