Miðvikudagur, 09. júní 2004
Hrikalegt hvað gerist þegar manni leiðist. Ótrúlegustu hlutir. Ég er búin að gera allt sem ég ætlaði að gera í kvöld og ætti að fara að sofa.
Sá viðtalið við Siggu í Mogganum áðan sem var flott. Ennþá betri var myndin, a.m.k. í mínu Mogga eintaki því það er ekki nokkur leið að þekkja okkur bloggarana. Kannski er þetta þrívíddarmynd?
Merkilegt.
Ég er að spá í að fara í bað. Ég þarf örugglega að spá í það í soldinn tíma áður en ég læt verða af því. Maður tekur ekki svona ákvörðun nema að vel athuguðu máli. Þetta er ekkert grín. Mér er fúlasta alvara.
Djöfull leiðist mér allt í einu svakalega. Spurning um að kveikja á sjónvarpinu.
Það er nú eiginlega neyðarástand.