Sunnudagur, 06. júní 2004
Ég áttaði mig ekki á því að ég myndi fara að fá póst héðan og þaðan úr heiminum frá karlmönnum sem finnst myndin af mér þarna upp í horni flott. Hún er auðvitað photosjoppuð og ókunnugt fólk myndi aldrei þekkja mig á götu af þessari mynd, en þeir sem þekkja mig vel gera það.
Það er einmitt þess vegna sem þessi mynd er þarna in the first place.
Um daginn fékk ég póst frá manni sem er tveimur árum yngri en ég frá enskumælandi landi. Ég svaraði honum og hann svaraði mér aftur. Ég notaði allar venjulegu karlmannasíurnar á hann. "Ég er nýskilin eftir fjórtán ára samband", "myndin er fótósjoppuð".. og ég er farin að hallast að því að einhver sé að fá hann til að gera þetta.. því hlutir sem hann skrifar og hlutir sem hann segist fíla, sem ég hef aldrei bloggað um en fíla.. þetta er orðið uncanny í meira lagi og með hverju bréfi sem hann sendir mér líkar mér betur og betur við hann.
Í dag sendi hann mér mynd af sér. Ég hef jafn mikið garantí fyrir að þetta sé mynd af honum og ég get verið viss um að ég fái bólu á rassinn á morgun. En ef þetta er hann.. þá myndi ég ekki hafna ef hann byði mér út að borða, við skulum bara orða það þannig.
Eftir að ég las nýjasta póstinn frá honum stendur mér ekki á sama. Ef einhver er að leika sér að mér, vill sá hin sami vinsamlega hætta þessu. Þetta er ekki fallega gert. Í alvöru talað.
Í öðrum fréttum.. sendi Jude póst áðan. Hann var svona:
"Hey Jude.. go fuck yourself. I don't have time for this shit."