...but it's probably me. - Sem þarf að þrífa helvítis íbúðina í dag. Sé ekki fram á að nokkur annar geri það.
| anna | 10:48 |
comments
hehehe
then you marry one
Nr. 1 | posted by: anna |
6.06.2004 | 13:00:48 | [+] |
I hate to say it...
Þetta byrjaði allt þegar ég var smástrákur og varð Royal karamellubúðingurinn fljótt minn uppháldseftirréttur. Þegar við konan byrjuðum saman kom þetta fljótlega til tals. Í fyrstu fannst mér ég sjá smá grettu á andliti hennar en bandaði því auðvitað frá mér sem hverju öðru rugli. Annað kom á daginn. Einn góðan veðurdag bauðst hún til að búa til fyrir mig Royal karamellubúðing. Mér hitnaði um hjartarætur. En það dró skjótt fyrir sólu. Búðingurinn var óætur og kom í ljós að hún hafði sett allt of litla mjólk í hann og hann því allt of sterkur. Enn í dag grunar mig að þetta hafi verið lævís tilraun til að fá mig til að fá ógeð á búðingnum. Það tókst ekki. Ég þurfti því eftir þetta að borða búðinginn einn - og búa hann til sjálfur.
Fljótlega eftir að dóttir mín komst til vits og ára sá ég leik á borði. Allir krakkar borða búðing. Auðvitað. Ég tók mig því til og lagaði búðing eftir öllum kúnstarinnar reglum. Setti skálina inn í ískap og lét búðinginn þykkna. Bar hann síðan á borð og setti tvær skálar á borðið. Kallaði á dótturina. Hún kom inn í eldhús og kallaði upp yfir sig. "Hvaða ógeð er þetta". Draumurinn úti og ég hélt áfram að borða búðinginn - einn.
Nú liðu nokkur ár og drengur bættist í fjölskylduna. Strax frá upphafi sá ég þarna tækifæri til að einn fjölskyldumeðlimurinn myndi vilja njóta búðingsins með mér. En ég vildi bíða rétta tækifærisins. Það kom í gær. Ég var búinn að spilla dregnum allann daginn, pulsur í hádegismat, James Bond á DVD um kvöldið. Þegar leið á kvöldið fór ég fram í eldhús, dró fram pakkann með Royal karamellubúðingnum. Las leiðbeiningarnar, þó ég kynni þær orðrétt utanað, því nú mátti ekkert fara úrskeiðis. Dró fram glæsilegustu glerskálina í húsinu, mældi mjólkurmagnið nákvæmlega, duftið út í og hrærði. Spennan jókst og loks fór skálinn inn í ískáp. Ég gat ekki stillt mig um að kíkja annarsslagið í ískápinn til að sjá hvernig gengi. Búðingurinn þykknaði hægt en örugglega. Fullkomið. Ég tók búðinginn út. Setti skálar og skeiðar á borðið og kallaði á strákinn. "Viltu ekki koma og fá þér búðing?", sagði ég smeðjulega. Hann kom hlaupandi sem elding og snarstoppaði. "Hvað eretta?", sagði hann. "Royal karamellubúðingur, viltu smakka", svaraði ég og dýfði skeiðinni í tindrandi búðinginn. Viðbrögðin voru kannski ekki alveg eins og ég hafði búist við. Meira í líkingu við það þegar ég þurfti að gefa honum njálgmeðalið hér um árið. Þegar skeiðin nálgaðist hörfaði hann lítilega aftur á bak og hryllileg gretta myndaðist á andlitinu, jafnvel óttasvipur. Örvænting greip mig en að lokum fékkst hann til að smakka. Ég vil helst reyna að gleyma svipnum á honum þegar hann kúgaðist eins og hann hefði borðað eitur.
I hate to say it en fjölskyldan hefur yfirgefið mig á hápunkti afmælisveislu minnar - þegar ég reiði fram Royal karamellu búðinginn. Enn sit ég einn að búðingnum. Sem er auðvitað kostur að mörgu leiti. Þá fær maður meira. En galli að því leiti að mun skemmtilegra væri að gleðjast yfir þessum frábæra rétti í góðra vina hópi.
Nr. 2 | posted by: igor |
6.06.2004 | 13:37:26 | [+] |
Þetta er ferlega fyndin saga. Mér fannst Royal búðingur einu sinni góður. Hef ekki fengið mér svoleiðis í mörg ár. En ég var meira fyrir súkkulaði með þeyttum rjóma.
Nr. 3 | posted by: anna |
6.06.2004 | 13:41:25 | [+] |
Skemmtilegt Og ekki nóg með það. Ég á að baki mjög svipaða reynslu... reyndi að gefa stráknum mínum Royal súkkulaðibúðing þegar hann var lítill. Uppáhalds mitt í gamla daga... svo prófaði ég Royal karamellubúðing og Royal vanillubúðing. Allt vont fannst honum. Gat heldur ekki fengið hann til að borða Royal hlaup... né heldur sagógrjónagraut, hrísmjölsgraut eða kakósúpu. Prófaði ekki einu sinni að gefa honum brauðsúpu með rjóma
Royal súkkulaðibúðingur með þeyttum rjóma er einn vinsælasti eftirréttur allra fjölskyldumeðlima hjá mér. Þetta hófst allt 1995 þegar frumburðurinn var 2 ára og við hjónin, sem bæði kunnum vel að meta þennan ljúfa rétt, bjuggum í stútentafátækt á hjónagörðunum við Eggertsgötu. Búðingurinn var komin á borðið og frumburðurinn sagði allt það sem þið að ofan hafið sagt. En þrjóskan í mér varð sterkari og dótturinni tilkynnt að svona ógeðslýsingar ættu ekki við fyrr en væri amk. búið að smakka á veigunum. En hún er líka þrjósk - já og pabbi hennar líka svo tíminn leið og hún sat við borðið á þriðja tíma og neitaði að smakka! Þar sem eldhúsið er náttúrulega inni í stofu gátu foreldrarnir haft það gott meðan hún sat í barnastólnum og horfði á búðinginn. Svo gerðist það - hún rak tungubroddinn í búðingsdropa á skeiðinni - og ..... smakka aðeins betur. Pabbinn spurði hvort þetta væri gott og hún ylgdi sig eitthvað framan í hann og spurði svo hvort hún mætti fá meira. Mamman rauk til og sótti skálina í ísskápinn og þegar búið var að hreinsa úr stóru skálinni með sleikju þá spurði villidýrið hvort við gætum haft þennan eftirrétt á hverjum degi! Þegar dóttir nr. 2 komst til vits þá varð frumburðurinn sú sem kenndi henni hversu frábært þetta er og er mjög dugleg við að flytja fagnaðarerindið þar eð sögu sína. Nú eru hrærðir tveir pakkar af Royal súkkulaðibúðing með þeyttum rjóma (ekkert gervirjómadrasl) svo allir fái nóg og það sé kannski smá möguleiki á að það verði afgangur svo þær geti fengið sér þegar þær koma úr skólanum. Ekki víst að ég verði jafnheppin með örverpið en hún getur þá bara étið það sem úti frýs á Royal búðingakvöldum
Étið það sem úti frýs? Djöfull ertu hörð á þessu! hahaha
Já áfram Royal! Er ekki hægt að stofna hollvinasamtök?
Nr. 6 | posted by: anna |
7.06.2004 | 10:15:32 | [+] |
Royal búðingur er ekki mannamatur. Skrítið að það skuli vera til aðdáendaklúbbur í kringum jafn furðulegan "mat".
Vissulega leið ekki sá sunnudagur í æsku að ekki væri á borðum væn skál af súkkulaði- eða vanillubúðing með þeyttum rjóma ofaná sem átti að metta þá sem ekki voru orðnir saddir af lambalærinu. Sem betur fer var stutt í kaffið, en þá kom búnterta með kakókremi og ein marmarakaka, courtesy of "Unga stúlkan og eldhússtörfin".
Það er búið að breyta umbúðunum á mörgum fæðutegundum æskuáranna (Opal brjóstsykurinn farinn úr plasti í skrjáfandi helvítis umbúðir, prins pólóið náttla klassískt drápsdæmi, lítrakókið komið í plast því glerburður er gamaldags osv.) en Royalinn stendur eftir eins og sá steinrunni þurs sem hann er með sína ælulegu pastelliti. Ojbjakk
Það er hægt að hafa sterkar skoðanir á Royal án þess að þær séu endilega ástríkar. En ef einhver hallmælir laugardagskvöldaísnum í pakkaumbúðunum er mér að mæta!
Royal búðingur er bara möst. Það brást ekki heima hjá mömmu að það væri að minnsta kosti ein gerð af búðing á eftir lambalærinu, með þeyttum rjóma ef við vorum rík, en rjómablandi ef við vorum fátæk ( sem reyndar var algengara... ) Hef ekki látið af þessum ágætis sið, og sit að heilli skál af búðing með þeyttum rjóma amk einu sinni í mánuði Verst hvað maður er oftast útbelgdur eftir heila skál
Mæli eindregið með því að komandi kynslóðum sé kynntur þessi þjóðarréttur, því Royal búðingur og lambalæri eru miklu þjóðlegri og mannvænni en þessi skemmda matarnefna sem menn troða í sig um þorrann
Sjáið nú hvað internetið getur gert. Þjappar saman ólíku fólki með sama baráttumál. Það er gott til þess að vita að maður stendur ekki einn í baráttunni við að koma Royal búðing niður í komandi kynslóðir.
Nr. 9 | posted by: igor |
7.06.2004 | 22:19:11 | [+] |
Er ekki viss. Mæli frekar með nýmjólk. Prófaði fjörmjólk um daginn og er ekki viss um að hún hafi verið að gera sig. Það má ekki gleyma því að búðingurinn var fundinn upp löngu á undan öllum þessum nýju mjólkurgerðum.
Nr. 10 | posted by: igor |
8.06.2004 | 8:45:05 | [+] |
ég skrái mig hér með í aðdáendaklúbb Royal búðinga. Minn uppáhalds er vanillu og svo karamellu og svo súkkulaði, og helst allir með rjóma. Reyndar er mjög langt síðan ég fékk skammt og mér hafði ekki enn dottið í hug að leyfa börnunum að spreyta sig, en nú eftir að hafa lesið þetta er ég rokin út í búð að kaupa búðing. einn af hverjum...
Nr. 11 | posted by: maja |
8.06.2004 | 11:07:45 | [+] |
Munið þið eftir kakósúpu með tvíbökum? Virkar ekkert sérstaklega í mín börn. En Ora fiskibollur í bleikri er í sérstöku uppáhaldi hjá dætrunum og einni bestu vinkonu minni sem kemur nánast alltaf í mat ef þetta er á boðstólnum. Þá er líka oft boðið upp á Royal í eftirrétt
Verður að vera þreyttur rómi, ekkert spreybrúsagums.
En leynitipsið mitt er:
banani í sneiðum út á súkkulaði og/eða vínber útá karamellu og/eða vanillubúðinginn. Klikkar ekki og bjóðandi á Bessastöðum við hvert tækifæri. Best að hringja í Dorriti og segja henni!