Föstudagur, 11. júní 2004
Ég hef lítið hreyft mig undanfarið. Ja nema í morgun. Þá fóru ég og Óli kerfisstjóri út að leika okkur í hacky sack sem ég hef aldrei gert áður en fannst hrikalega gaman. Var soldið erfitt því ég er í háhæluðum stígvélum en Óli hló bara þess meira. Verð að fá mér svona bolta.
Eftir vinnu ætla ég að fara út með krökkunum að hjóla og ég er alvarlega að spá í að kaupa mér tuttugu 1/2 lítra flöskur af kók, fá hacky sack og leika mér.
Mig langar að byrja í líkamsrækt og mig langar að fara að synda á morgnanna fyrst ég er farin að vakna svona snemma. Mig langar svo margt.
Til dæmis langar mig að elda alveg hriiiiikalega góðan mat í kvöld, fá mér ís í eftirrétt og leigja mér vídeó og glápa. Ég er svei mér þá bara að hugsa um að láta þetta eftir mér!
Ætli maður geti fengið svona hacky sack bolta gegn öðrum gjaldmiðli en kóktöppum?