www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
"hæ, ég á afmæli í dag"
Þriðjudagur, 22. júní 2004

Christ hvað þetta varð klikkaður dagur í lokin. Maður ruglast þegar maður situr inni í svona veðri, það er nokkuð ljóst. Ég og kerfisstjórinn minn vorum farin að syngja "inn og út um gluggann" og velta því fyrir okkur hvort við ættum að koma í leiki eins og "í grænni lautu" eða "hver er undir teppinu". Hættum við þar sem við vorum bara tvö svo þetta var given either way.

Datt okkur í hug að plata einhverja af starfsmönnum hinna fyrirtækjanna í húsinu til að leika við okkur, einhvern af þessum þremur sem voru ekki í fríi í dag. Gátum platað einn sem rambaði inn til okkar af rælni en samt.. eiginlega no contest að leika þessa leiki bara þrjú, auk þess sem gesturinn benti á að við vorum ekki með neitt teppi. Kerfisstjórinn minn dó nú ekki ráðalaus, við myndum bara fara í leikinn "hver er undir borðinu". Vill til að við erum með vegleg skrifborð.

Auðvitað gerðum við ekkert af þessu, enda sannir fagmenn. Það er nefnilega munur á því hvað er rætt um að gera og hvað er actually gert. Verst að kerfisstjórinn fór með hacky sack boltan heim til sín og gaf dóttur sinni hann. Það hefði hann ekki átt að gera því hún lánaði vinkonu sinni boltann og sú tapaði honum einhverstaðar innan við klukkutíma síðar og kannast ekkert við að hafa fengið hann lánaðan. Við erum í sorg og kerfisstjórinn er farinn að þamba kók til að fá annan bolta til að létta okkur lífið í sumar.

Rétt fyrir lokun tókum við á alvöru málum sem þurfti að taka fyrir og aftur, eins og fagmenn, komumst við að viðunnandi niðurstöðu sem verður hrint í framkvæmd first thing in the morning. Auk þess sem ég ætla að mæta með teppi ef það verður sól þegar ég vakna. Maður verður að vera við öllu búin.

doddi_afmaeli.jpgEftir vinnu sótti ég Dodda og fór með krakkana að versla. Það fyrsta sem Doddi gerði þegar hann kom inn í búðina var að ganga á kassaröðina í búðinni, með leikskólakórónuna á höfðinu, og segja við allt afgreiðslufólkið: "hæ, ég á afmæli í dag". Þau voru voða sæt við hann og óskuðu honum til hamingju með afmælið en þegar hann var búinn með röðina voru allir hlæjandi, bæði afgreiðslufólk og viðskiptavinir. Ég stoppaði hann af þegar mér varð ljóst að hann ætlaði að tilkynna öllum í búðinni þessa stórfrétt.

Eins og mig grunaði þá vill Doddi fá hamborgara í afmælismatinn svo ég keypti hamborgara og kerti á kökuna. Hann gerði mér það líka alveg ljóst, og flestum í Nóatúni, að hann kærir sig ekki um pizzu afmæli (ég ætlaði að sleppa billega í ár) hann vill kökur og margar, margar, margar kökur því hann ætlar að bjóða mörgum, mörgum, mörgum gestum...

Það er eins og hann hafi skyndilega fattað út á hvað þetta gengur, hann hefur verið furðu rólegur með afmælið sitt hingað til, en þetta er auðvitað stór afmæli. Maður verður bara sex ára einu sinni!

Ég vona samt að hann verði hættur að tilkynna ókunnugum upp úr þurru að hann eigi afmæli þegar hann er orðin tvítugur...


| anna | 18:17 |
comments

Veistu, sem dyravörður get ég sagt þér að fólk á þetta til fyrir tvítugsafmælið sitt...mjög margir...þ.e.a.s. að það gengur um og tilkynnir ókunnugum upp úr þurru að það eigi afmæli...hef séð það ansi oft. smile

Nr. 1 | posted by: Kristó | 22.06.2004 | 18:42:57 | [+] |

DOH! sour

Nr. 2 | posted by: anna | 22.06.2004 | 18:49:51 | [+] |

til hamingju með litla krúttið! alltaf gaman þegar skottin manns eiga ammæli!

Nr. 3 | posted by: litlaskvis | 23.06.2004 | 9:12:58 | [+] |

ef þú rekst á mjög unglega og fína stúlku rétt fyrir miðjan nóvember sem tilkynnir þér uppúr þurru að hún sé að verða þrítug, þá verð það ég að vinna mig útúr krísunni... shy

Nr. 4 | posted by: maja | 23.06.2004 | 9:58:06 | [+] |

hahahaha góð maja! Blessuð vertu. Að verða þrítugur er ekkert mál. I'm having a blast. wave

Nr. 5 | posted by: anna | 23.06.2004 | 11:41:10 | [+] |

Það er nú ævintýri að eiga svona fallegan 6 ára strák happy

Nr. 6 | posted by: Úllen Dúllen | 23.06.2004 | 13:23:19 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web