www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Gufa
Þriðjudagur, 15. júní 2004

Í gær fór ég í sund. Þegar ég var í sturtunni á leiðinni út í laug var stelpa, sem var að koma upp úr, að klára að þvo sér. Ég synti slatta og svo fór ég í gufu.

Í gufunni átti ég skemmtilegt "móment".

Þegar ég kom inn í gufuklefann var ein stelpan að gera teygjuæfingar, önnur stelpa sat við hliðina á henni. Við hliðina á þeirri stelpu sat maður í sömu stellingum og hugsuðurinn, nema hann hélt um ennið og var með hárið út í allar áttir. Við hliðina á honum sat stelpa og við hliðina á henni sat strákur.

Þetta var um klukkan níu í gærkvöldi.

Skyndilega fór ég að heyra rödd en ég gat ekki greint frá hverjum hún kom. Ég greini ekki orðaskil inn í þessum klefa, það bergmálar svo, viðmælandi minn þyrfti að sitja við hliðina á mér ef ég ætti að geta fylgst með. Stuttu eftir að þessi rödd byrjaði að heyrast fór fólkið að týnast út úr gufunni. Það gerðist frekar hratt, held að gufan hafi tæmst á tveimur mínútum eða minna, allir nema ég og hugsuðurinn.

Þegar síðasta manneskjan fór braust sólin inn um glerflísarnar á veggjunum og allt í einu fannst mér ég ekki vera í gufu lengur, þetta leit meira út eins og helgimynd úr Sunnudagaskólanum. Áttaði mig líka á því að það höfðu ekki verið neinar viðræður í gangi, röddin sem ég heyrði var eintal hugsuðarins sem var greinilega mikið niðri fyrir og ræddi málin við sjálfan sig fram og til baka á meðan hann hallaði sér fram og hélt um höfuðið. Þegar honum var sem mest niðri fyrir hristi hann hausinn ákaft og við það ruglaði hann í hárinu á sér með höndinni.

Ég var búin að vera hálf tense upp að þessu. Eitthvað stressuð eftir daginn. Ætlaði í gufu til að slappa af en sat beinstíf og ríghélt í bekkinn sitt hvoru megin við lærin á mér með höndunum. Eins og það ætti að leiða mig til slátrunnar... en mér leið svo vel að sitja þarna með þennan mann beint á móti... röflandi við sjálfan sig... og sólargeislana allt í kring. Mér fannst þetta svo furðulegt eitthvað. Ég hallaði mér aftur og náði að slappa svo vel af að það var dásamlegt. Eftir nokkrar mínútur opnaðist hurðin og annar maður kom inn í gufuna. Hann stikaði stórum skrefum að hugsuðinum og sagði djúpri röddu "Góða kvöldið.." náði ekki nafninu.. en samstundis dró fyrir sólu.

Ég stóð upp og fór í sturtu.

Þar sá ég sömu stelpu og hafði verið að koma upp úr þegar ég fór ofaní. Nú var hún að þurrka á sér hárið.

Ég þori að veðja að ég hafi verið komin heim til mín áður en hún var búin.


| anna | 13:16 |
comments


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web