www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Góður dagur
Miðvikudagur, 09. júní 2004

Sumir dagar eru eftirminnilegri en aðrir.

Mig langar heim að sofa. Það er ekkert hægt að vinna í svona veðri.

Fyrir þá sem langar að lesa eitthvað skemmtilegt bendi ég á óhappasögu sem ég las áðan hjá Togga. Ég grét úr hlátri framanaf, grét svo úr hryllingi í restina.

Og ég sem setti á mig maskara í morgun. Þeir sem koma hingað geta ekki ætlast til að fá nokkra þjónustu frá manneskju sem lítur út eins og ég geri núna. Yrði ekki hissa þó þeir myndu bara votta mér samúð sína og fara öfugir út. Samt skælbrosi ég eins og fáviti. Æ ég vona að það komi engin hingað. Ég er svo upptekin við að halla mér aftur í stólnum, með fæturna upp á borði.

Eftir að ég fór að lesa blogg sögumannana sé ég að það er óhjákvæmilegt að updeita linkana hjá mér. Hendi út aumingjabloggurunum í leiðinni og rusli sem fólk hefur skilið eftir á síðunni minni. Helvíti flottur heftari samt. Ætla að halda honum.


| anna | 14:04 |
comments


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web