www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Fyrir Dórið
Föstudagur, 04. júní 2004

Ég er svo dugleg. Það er ekki venjulegt.

Það var eitt sem ég gleymdi að gera áður en ég fór af landi brott og Júlía hefur verið lítið hér, a.m.k. var íbúðin nákvæmlega eins og ég skildi við hana. Ég gleymdi hinsvegar að henda úr ísskápnum og lyktin úr honum þegar við komum heim var eins og af úldnum fiski sem er búinn að standa í tvær vikur. Samt var engin fiskur í ísskápnum, bara tvö kjúklingalæri. Merkilegt. Ætli allur matur mygli eins? Þetta kallar á tilraun úti á svölum. - NOT!

Ég tók ísskápinn í gegn áðan og dreif mig svo niðrí Siemens og keypti peru í ísskápinn, sem ég er búin að ganga með í veskinu í hálft ár núna, og nýja hillu í hurðina. Alveg rosalega góð þjónusta þarna enda kaupi ég nú orðið ekki neitt af heimilistækjum nema þau séu kyrfilega merkt Siemens í bak og fyrir og að sjálfsögðu í umboðinu.

Ég er fegin að það er sumar því ég veit að mér á eftir að bregða þvílíkt þegar ég opna ísskápinn í kvöld til að ná mér í vatn eða eitthvað annað hollt og gott.. ehm.. því nú á ég eftir að sjá hvað er í ísskápnum þar sem peran sem ég keypti virkar. Það slær nú samt ekki á þunglyndið enda mild birta af þessari peru og gerir lítið annað en að lýsa upp ekkert, sem er venjulega í ísskápnum mínum.

Ég á of stórann ísskáp.

Tók til í ruslinu sem hefur hlaðist upp á framhlið ísskápsins og kippti í leiðinni jólasveina seglunum úr umferð. Þá held ég að allt jólaskrautið sé komið niður, nema þessi eini jólasveinn þarna uppá skáp sem ég nenni aldrei að ná í því þá þyrfti ég að ná í stól úr eldhúsinu til að standa uppá, og ég nenni því sko ekki. Þetta er einmitt ástæðan fyrir því að ég er ekki með seríu úti á svölum. Nei.. helvítis lygi, það er önnur ástæða fyrir því sem ég fer ekki út í nánar. Það er alveg sérstakt dæmi sem er efni í smásögu ef ekki fjögur hundruð blaðsíðna skáldsögu, eða ævisögu.. eða eitthvað.

Nú.. að lokum þessarar ísskápa-stórhreingerningar setti ég lottó miðann sem ég keypti út á bensínstöð áðann undir segul á framhlið ísskápsins. Bensínstrákurinn sagðist finna lykt af vinningi á miðanum þegar ég keypti hann svo ég sagði við hann: "Ég heiti á þig.. ef ég vinn aðal vinninginn skal ég bjóða þér út að borða..." hann brosti til mín "í London", bætti ég við. Hann tók "trucker horn" dýfu með hægri hönd og hrópaði: "Yeehahh!".

"Hold it.. ég er ekki búin að vinna ennþá".

Og þó ég vinni.. þá kaupi ég svo sjaldan lottó að ég gleymi alltaf að tékka á hvort ég vann. Ég ætti kannski að geyma miðana í veskinu? Eins og peruna úr ísskápnum?

Það er vænlegra til árangurs. En sem ég sit hér.. þá nenni ég ekki að ná í hann og setja hann í veskið. Enda er ég alveg uppgefin eftir þennan dugnað með ísskápinn. Held ég fari í langt slökunnarbað.

Ah.. ég hefði auðvitað átt að segja honum, bensínstráknum, að minna mig á að tékka á þessu. Hann hefur hagsmuna að gæta. Auk þess veit hann ekki.. ef ég vinn ætla ég sannarlega að bjóða honum út að borða í London og hann má taka með sér einn gest að eigin vali.. bara ekki mig.

Ég ætla að bjóða öðrum manni með mér út að borða - í Róm.

[Þessi færsla mín er númer eitt þúsund. Af þessum þúsund sem ég hef skrifað hef ég ákveðið, á hverjum tíma fyrir sig, að birta ekki 277 færslur. Það er nú bara slatti af einkalífi finnst mér! MÚHOHO]


| anna | 17:59 |
comments

Og hvað af þessu er fyrir Dórið?
Til hamingju með þúsundustu færsluna smile

Nr. 1 | posted by: Harpa | 5.06.2004 | 0:39:02 | [+] |

Öll færslan er fyrir Dórið. Hann var að kvarta yfir því að ég væri hætt að blogga um húsmóðurleg störf mín í þessu lífi. Það sem ég geri fyrir Dórið er ekki lítið.. og hann gerir ekkert fyrir mig. EKKERT!

Heyrirðu það Halldór? Laus í lunch á mánudaginn? Ég skal blogga um það þegar ég þríf baðherbergið á morgun og skápinn undir vaskinum.. wave

Nr. 2 | posted by: anna | 5.06.2004 | 0:57:12 | [+] |

Ég bíð spennt clown

Nr. 3 | posted by: edda | 5.06.2004 | 14:14:47 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web