Fimmtudagur, 17. júní 2004
Það getur stundum reynst gott að kunna fatasaum. Sérstaklega þegar maður kaupir sér föt. Eins og komið hefur fram keypti ég mér jakka í gær. Hann er flottur en það eru tveir gallar á honum. Nei það eru þrír gallar á honum. Nei.. fjórir.
Hann er tvíhnepptur og eins og gerist í verksmiðjusaumuðum fötum, þá er sniðið þannig að kraginn legst ekki til hliðanna heldur lokar jakkanum alveg. Þetta er hægt að laga og ég er búin að því með smá saumakonutrikki. Ermarnar voru líka aðeins of síðar (1 cm) og ég er búin að stytta þær. Það var ekki svona snúra til að hengja jakkann á snaga.. og ég þoli ekki föt sem hafa ekki svoleiðis fítus.. svo ég setti einn á. Ég hengi jakkana mína nefnilega oft á snaga og ég þoli ekki þegar það kemur horn upp úr bakinu á flíkinni.
Að lokum.. þá eru vasarnir of grunnir. Það er alveg sama hvað ég myndi setja í þessa vasa.. það myndi týnast. Þetta er ég ekki búin að laga einfaldlega vegna þess að ég á ekki fóður á lager, a.m.k. ekki hvítt. -Þýðir að ég kem líklega aldrei til með að laga vasana. Ekki vegna þess að ég ætla ekki að gera það. Ekki vegna þess að ég nenni því ekki. Nei.. ég sé ekki fram á að vakna svona snemma alveg á næstunni til að sinna svona dóti. Ekki geri ég það á 24 tíma sólahrings vöktunum.
Samt. Just in case.. ætla ég ekki að loka fóðrinu.
Er jafnvel að spá í að sleppa því að dýpka vasana og setja bara innaná vasa fyrir kort og síma.
Það er ekki vitlaus hugmynd, en mig vantar samt fóður...
Þegar ég var að máta jakkann í búðinni heyrði ég einhvern segja: "þessi er flottur á þér". Ég snéri mér við og þarna stóð kona og horfði á mig á milli þess sem hún skoðaði peysur á næstu slá. Ég brosti og sagði: "já er það ekki?" Hún kinkaði kolli. Ég náði mér í annan jakka og mátaði hann, leit á hana, hún gretti sig og hristi hausinn. Mátaði hinn aftur og hún kinkaði kolli aftur brosandi. Ég horfði á mig í speglinum og þegar ég ákvað að kaupa hann sagði ég: "ég kaupi hann", snéri mér við en.. konan var horfin. Mig langar að þakka henni. Ég á nefnilega stundum alveg hrikalega erfitt með að ákveða mig.
Mér finnst rétt að taka fram.. að ég tek ekki að mér fatabreytingar. Ég vann við það í heilt ár og fékk ógeð. Ég kann hinsvegar að rekja upp sauma með gluggasköfublaði svo hratt... að ef sumar fínu frúrnar hefðu seð til mín með fínu kjólana þeirra.. hehehe.. þær væru ekki meðal vor í dag.
Kannski ég ætti líka að laga afturljósið á bílnum í dag fyrst ég er búin að kaupa lakk?