www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Dejavu
Sunnudagur, 13. júní 2004

Var að verða fyrir undarlegasta dejavu-i sem ég hef orðið fyrir í langan tíma. Ég var að þrífa, eins og venjulega, og m.a. þurrka af eldhúsborðinu... þegar ég var búin tók ég drasl sem varð eftir á borðinu og henti því.

Fór út í búð til að kaupa það sem vantar í matinn.. fór inn í eldhús og þarna var þetta drasl. Á eldhúsborðinu. Aftur. Á sama stað og síðast. Nákvæmlega sama ruslið.

Wazzup with that?

Needless to say, þá er ég búin að henda því aftur. En ég þori ekki aftur inn í eldhús. Það er ekki nokkur spurning, ég þarf að fá mér ráðskonu.


| anna | 18:30 |
comments

Hugarburður.

Ég komst að því fyrir nokkrum árum að allt hefði sínar eðlilegu skýringar. Ótúrlega oft væri skýringanna að leita í heilanum. Einhvern veginn laust því bara niður - reyndar eftir langar vangaveltur. Ekkert væri til sem væri yfirnáttúrulegt. Bara spurning um að finna skýringuna. Ástæðuna. Til þess að auðvelda sér leitina þá er nauðsynlegt að gefa sér þá forsendu að ástæðan eigi sér eðlilega skýringu. Þá opnast dyr. Gátur leysast. Draumar verða skýrðir. Uppruni trúarinnar verður ljós. Maður ræður því hvort guð sé til - eða ekki.

Tók mig smá tíma að klára það síðasta. Dejavu. Skrítið að þú skulir nefna dejavu í eldhúsinu við vaskinn. Ég uppgövaði einmitt hvað dejavu er við uppvask í eldhúsinu fyrir ekki löngu síðan. Það sem vafðist fyrir manni var að dejavu lítur út fyrir að vera eitthvað sem hefur ekki gerst en gerist, í augnablik, augnabliki eftir að maður sér það gerast. Lítur út fyrir að vera raunverulegt. En er hugarburður.

Draumar eru myndbrot úr fortíðinni. Draumar eru alltaf eitthvað sem maður hefur séð einhversstaðar eða hefur hugsað um einhverntímann. Dejavu er skylt draumum. Dejavu er hugarburður. Dejavu er draumur. Draumur í vöku. Dejavu er bland af:

- því sem hefur gerst
- því sem er að gerast
- einhverju sem við höfðum einhvern tímann hugsað um að gæti gerst

Það síðasta aðgreinir dejavu frá draumum. Tvö fyrrnefndu atriðin eru nauðsynleg til að búa til myndirnar. Í huganum. Eins og í draumum.

Þín lýsing er ekki dejavu. Þú bara gleymdir að henda ruslinu en hugsaðir svo stíft um það að henda ruslinu að í huganum varst þú búinn að þvi. Þegar þú komst heim aftur var ruslið auðvitað enn á borðinu. Heilinn er ótrúlegur.

Nr. 1 | posted by: igor | 13.06.2004 | 22:37:32 | [+] |

Ég henti því tvisvar. Ég veit þetta vegna þess að ég tók þetta upp með vísifingri og þumalfingri, hélt því upp að auganu og hugsaði: "skrítið.. ég er ekki búin að hafa pasta lengi.. hvaðan kemur þetta?" Svo opnaði ég ruslaskápinn, færði höndina sem hélt á þessum hlut, yfir ruslið og þegar höndin var kominn alveg yfir miðja tunnuna sleppti ég takinu á hlutnum og horfði á hann detta til botns.

Þegar ég var búin að þessu leit ég á borðið og það var autt.

30 mín seinna endurtók ég þetta nákvæmlega eins. Nema í seinna skiptið var ég furðu lostin.

Nr. 2 | posted by: anna | 13.06.2004 | 23:52:23 | [+] |

Þá er þetta augljóslega ekki Dejavu... silent

Nr. 3 | posted by: thors | 14.06.2004 | 2:28:56 | [+] |

Hvaða laun hafðir þú í huga fyrir ráðskonuna?

Nr. 4 | posted by: organistinn | 14.06.2004 | 4:12:56 | [+] |

Eh.. ég var nú ekki komin svo langt.. Ég þarf ráðskonu sem vinnur ánægjunnar vegna. Og það væri ekki verra ef hún er næringarfræðingur líka. happy

Nr. 5 | posted by: anna | 14.06.2004 | 10:11:35 | [+] |

Ég er óhæfur sem ráðskona, en gratís ráð um næringu getur Organistinn gefið.

Mikilvægast er að skera niður fituneysluna, þ.e. neyslu á mettaðri fitu. Í raun þarft þú að verða grænmetisæta og sleppa líka mjólkurvörum. Annað mikilvægt er að stunda reglubundna hreyfingu (í viðbót við kynlíf). Gott skokk eða sund þrisvar til fimm sinnum í viku virkar.

Fólk sem gerir þetta tvennt er venjulega grannt og því líður á allan hátt vel. Á þennan hátt getur þú haldið áfram að stunda magadans og í kaupbætur færðu göfugleikann að vinna gegn misnotkun dýra.

Nr. 6 | posted by: Organistinn | 14.06.2004 | 20:17:24 | [+] |

Segðu mér Organisti, ert þú grænmetisæta?

Nr. 7 | posted by: anna | 14.06.2004 | 20:22:03 | [+] |

Ég er að reyna, en þetta er nú bara svona tiltölulega nýskeð (styttra en Tóti hefur verið edrú). Því finnst mér óþægilegt að taka við titlinum grænmetisæta að svo komnu máli.

Þegar ég er búinn að vera kjötlaus í eitt ár ætla ég að kaupa auglýsingu í DV og lýsa því yfir að Organistinn sé grænmetisæta.

Annars er alveg ótrúlegt hvað margt grænmeti er gott á bragðið.

Nr. 8 | posted by: Organistinn | 14.06.2004 | 22:42:05 | [+] |

Sammála, það er alveg lygilega gott og svo líður manni svo svakalega vel. En ég held samt að mig langi ekki að gerast alveg grænmetisæta. Mér finnast steikur svo svakalega góðar. Ekkert að því að borða grænmeti með þeim samt. wink

Nr. 9 | posted by: anna | 14.06.2004 | 23:28:08 | [+] |

I agree, I don't think I could be an all vegetarian! Although I eat much vegetables, but sometimes I just got to have a nice steak.

Nr. 10 | posted by: Matthias | 15.06.2004 | 10:51:38 | [+] |

Something has been altered.

The Matrix has you.

Knock knock.... follow the white rabbit....

Bleagh sick

Nr. 11 | posted by: tosi | 15.06.2004 | 21:39:42 | [+] |

Já nei.. það var engin hvít kanína, en það var blár kanarífugl.. doubt

Nr. 12 | posted by: anna | 15.06.2004 | 22:02:22 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web