Laugardagur, 05. júní 2004
Myndataka, velja tónlist.. skila inn handriti. Djöfulinn var ég nú að segja já? Mér er illa við myndatökur, ég get ekki gert upp á milli laga og ég hef ekki hugmynd um hvað ég á að segja.
Reyndar veit ég af hverju ég sagði já, og án þess að hika. Ég vil frekar sitja í ruggustólnum á Grund, japlandi á fölsku tönnunum og stillandi heyrnatækið.. og rifja upp allt sem ég gerði.. í stað þess að bölva mér fyrir allt sem ég gerði ekki þó ég fengi tækifæri til þess.
Hvort þetta verður skemmtilegt.. veit það ekki. Kemur í ljós. Eins og staðan er núna þá verður þetta ekki skemmtilegt að hlusta á, því ég er ekki byrjuð á handritinu. Samt.. hef vague clue um hvað ég ætla að gera. Þarf bara að komast í zone og skrifa það. Verra með lögin og verst með myndatökuna.
Ah.. best að naglalakka sig. Þá verður allt betra.