Laugardagur, 26. júní 2004
Það var fjör í afmælinu hans Dodda, sérstaklega hjá fullorðna fólkinu. Við skiptumst í þrjá hópa: auður, Baldur og Óli. Líflegar samræður. Skilst að auður sé með mest fylgi fyrir utan sitjandi forseta hjá kjósendum almennt.
Þegar ég var búin að taka til eftir afmælið skellti ég mér í bað og fór að kjósa. Einhverra hluta vegna ætlaði ég að vera heima í kvöld. Ruglið í mér. Það breyttist hinsvegar um átta leytið þegar ég hringdi í Þóru. Nú verður gerð lokatilraun til að finna stað til að dansa á. Ef það gengur ekki upp.. þá verður Hugi bara að put up with me.. and my music.
Hugi býr á hæðinni beint fyrir neðan mig. Verst að þegar ég hitti hann síðast sagði hann mér að hann væri að hugsa um að selja íbúðina. Ég er ekki að fíla það, no way. Við erum með samning í gangi ég og Hugi. Hann segir ekkert við því þegar ég blasta tónlist og ég segi ekkert þegar hann spilar á píanóið. Þó ég hafi sagt honum að mér finnist gaman þegar hann spilar á píanóið, eins og að hafa einleikara inní stofu og svo spilar hann líka skemmtilega tónlist, þá er eins og það sé ekki að registera hjá honum. Hann er alltaf jafn þakklátur þegar ég segi "no sweat" með píanóið.. en ég efast hinsvegar stórlega um að hann fíli tónlistina sem ég spila, en já.. mental note: skrifa ink spots disk fyrir Huga.
Ég er hinsvegar komin með open invitation til Huga. Ef ég heyri í fólki er ég velkomin. Já.. og ég er búin að komast að því hvað verið var að rífast um* þegar ég kom heim af djamminu um daginn. Það var hjá Huga. Fokk.. ég vissi að ég hefði átt að fara niður. Ég hefði getað settlað það argument...
Mikið djöfull er Billy Jean gott lag. Man einhver eftir svari Billy Jean? Ég man það..
Æ.. af hverju er Jude ekki á landinu?
*þó að ég hafi ekki bloggað um það.. þá heyrði ég rifrildi úr partíinu þetta kvöld. Það gerast nefnilega hlutir þó ég bloggi ekki um þá. En þá blogga ég bara um þá seinna. Dísus.. ég er eins og glæpamennirnir.. ég get ekki haldið kjafti!
MÚHOHOHOHO