Þriðjudagur, 08. júní 2004
Eftir gærkvöldið er ég einum síma, þremur sleipiefna prufum og tveimur smokkum ríkari og einhverjum þúsundköllum fátækari. Gleymdi að taka þetta upp úr töskunni þegar ég kom heim, svo það má segja að ég hafi verið við öllu búin fyrir hádegi í dag.
En ekkert gerðist.
Svo ég tók þetta uppúr töskunni áðan. Allt nema sleipiefnaprufurnar. Maður veit aldrei hvenær það kemur að góðum notum. Gæti fest rennilás eða þurft að ná af mér hring. You never know.
Ég hef komist að því að Royal búðingur er mikið sameiningartákn lesenda minna sem láta í sér heyra í kommentum, nema einn, sem er undantekningin sem sannar regluna. Mér var hugsað til Royal búðinga á dóta kvöldinu í gær og datt allt í einu í hug aðstæður þar sem ég gæti vel hugsað mér að borða Royal búðing með þeyttum rjóma, og mikið af honum. Gott að vita að það er til fólk þarna úti sem myndi hugsanlega vilja deila því mómenti með mér..