www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Anna vs anna.is
Sunnudagur, 20. júní 2004

Um helgina hitti ég einn karlkyns lesenda minna. Ég spjallaði við hann heillengi og komst ekki hjá því að spyrja viðkomandi hvort honum fyndist Anna vera eins og hann hélt að hún væri. Anna virðist standa undir þeim væntingum sem anna.is býr til. Kannski ekki skrítið. Það er jú Anna sem skrifar mig.

Þessi helgi er búin að vera róleg. Vaknaði snemma á laugardaginn, þreif soldið, leigði mér Mystic River og klukkan ellefu hringdi María í mig. Hún var í útskrift og á leiðinni á mohitos. Ég fór að hitta hana í útskriftinni og sá þar fallegasta par sem ég hef séð lengi. Þau voru svo ástfangin að það leyndi sér ekki.

Skrapp í smá stund á mohitos. Það er augljóslega staður sem gaman er að dansa á, þó að ég hafi nú ekki séð neitt sem líktist Jude þar. Oh well.. can't have everyting. Upp úr klukkan eitt keyrði ég Maríu til kærastans og fór heim. Horfði á Mystic River og fór að sofa.

Ég ætlaði aldrei að sofna því það helltist yfir mig svo mikil hræðsla og mér fannst ég svo ein og óörugg og lítil og heimurinn svo stór og ógnvekjandi, fullur af fólki.. sem ég veit ekki...


| anna | 15:01 |
comments


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web