www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
and ever so slowly
Sunnudagur, 06. júní 2004

Ég er búin að finna svolítið og ég veit ekki hvað ég á að gera við það.

Já og nei ég fann það ekki í draslinu hérna þegar ég tók til í dag. Fann það annarstaðar. Inn í mér. Rykfallið efst á hillunni í litlu kompunni undir stiganum sem liggur upp á háaloft. Þessari sem ég hef forðast og ekki þorað að opna í rúman áratug.

Það var ekki ég sem opnaði hurðina.. en þegar ég sá að hún var opin náði forvitnin yfirhöndinni, þrátt fyrir að ég vissi að ég myndi finna þetta aftur. Eins og manneskja sem lokar augunum og gengur fram fyrir aftökusveit af fúsum og frjálsum vilja.

Ég er búin að skoða þetta frá öllum hliðum en ég veit ekki hvað ég get gert. Ég veit að ég get ekki geymt þetta í þessari kompu alla ævi. Ég kæmi aldrei til með að fá frið. Það eru bara tveir staðir sem koma til greina. Ofan á arinhilluna.. eða í eldinn *hviss* og láta það brenna upp.. þangað til það er ekkert eftir.

Ef það er þá hægt.

Þangað til ég finn út hvað gerist.. stend ég með lokuð augun og finn hvernig byssukúlurnar tæta mig í sundur. Ég vona bara að það verði eitthvað eftir af mér, ef ég get sleppt takinu.. og gengið í burtu.

Það skrítna er.. að mig langar ekki að sleppa.


| anna | 19:49 |
comments

Stigi upp á háaloft ?
Veit Jude af þessu silent

Nr. 1 | posted by: edda | 7.06.2004 | 10:12:05 | [+] |

Nei silent

Nr. 2 | posted by: anna | 7.06.2004 | 10:13:08 | [+] |
post a comment


Muna upplýsingar?












smilie winky colgate happy boogie toungue wahahahaha

angel embarassed doubt silent sad guilty shy sour

hmmm evil gnasher sick drunk what cool wave

weepy melodramatic nerd clown chococat nightmare pirate








Tell me, yes or no.








recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web