www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Alltaf að baka og svona..
Laugardagur, 26. júní 2004

Klukkan hálf fjögur í nótt fór ég í bað. Þá var ég búin að mála herbergið, setja nýja rúmið saman og búa um mig. Það er ekkert, ekkert eins æðislegt og að fara í bað og upp í hreint rúm. Can't beat the feeling.

Ja jú.. reyndar er hægt að bíta þann fíling með hjálp dugandi karlmanns. Augljóslega.

Ég var að hlusta á Out Of Sight soundtrackið undir það síðasta, þvílík snilld. Í morgun vaknaði ég klukkan átta og byrjaði að baka fyrir afmælið. Planið er að vera búin fyrir klukkan tólf, og þá ætla ég að leggja mig. Ég held að það sé plan sem komi til með að ganga upp.

Annars fékk ég hálfgert taugaáfall í nótt. Lá uppí rúmi og hlustaði á vindhörpuna sem ég keypti á Spáni.. þegar ég heyrði eitthvað annað hljóð frammi. Ég lagði við hlustir og jú.. ekki spurning.. það var eitthvað að gerast frammi, no kidding, og mér stóð ekki á sama því hljóðið nálgaðist herbergið mitt. Eins og einhver væri að reyna að læðast klaufalega um - rekandi sig í hluti.

Ég velti því fyrir mér hvað ég ætti að gera, því ég var orðin viss um að það væri einhver þarna. Vill til að ég hef alla mína þekkingu og visku úr bíómyndum svo ég vissi að ef ég færi fram að athuga hvaða hljóð þetta væri, yrði mér nauðgað og svo yrði ég myrt. - eða.. þá væri þetta hræðilegt alien sem myndi.. again.. myrða mig, nema á mjög hryllilegan hátt. Hljóðið nálgaðist. Ég gæti líka legið í rúminu áfram.. beðið..

What to do, what to do...

Auðvitað setti ég á mig ljósu hárkolluna, málaði mig og fór framúr. Ekki spurning. Ef ég á að drepast heima hjá mér, falla fyrir hendi geimveru.. þá finnst mér óþarfi að sóða út herbergið sem ég er búin að eyða kvöldinu í að koma í lag. Ég var hvort sem er ekki búin að skúra ganginn...

Í dyrunum mætti mér ugla. Helvítis gasblaðra. Já, gasblaðra síðan á sautjánda júní var að vappa um íbúðina. Mér dauðbrá auðvitað og í split second, áður en ég áttaði mig á því að þessi óboðni gestur var blaðra, fraus blóðið í æðum mér og ég fann hárin á bakinu rísa. Ég varð svo pirruð þegar ég áttaði mig á því hvað þetta var.. að ég reyndi að kyrkja ugluna.. henti henni svo inn í barnaherbergi blótandi og ragnandi og skellti hurðinni á eftir mér.

Djöfull eru gasblöðrur creepy.


| anna | 9:44 |
comments

Það hefur ekki allur vindur verið úr þessari uglu toungue

Nr. 1 | posted by: Atviksorða-Anna | 26.06.2004 | 10:09:03 | [+] |

Ég var að kíkja á póstinn minn eftir nokkurra daga gleymsku og komst þá að því að það lítur út fyrir að tippastækkunarmenn og sölumenn viagra (sorrí, V.I.A.G.R.A.) séu margir hverjir komnir í sumarfrí. Eða is it something I did? I miss you weepy

NOT colgate

Nr. 2 | posted by: Atviksorða-Anna | 26.06.2004 | 10:27:45 | [+] |

hehehe nei, það var ekki allur vindur úr þessari helv uglu. Því miður.

Skarplega athugað þetta með tippastækkunina. Ég er bara að fá vírusa þessa dagana..

Nr. 3 | posted by: anna | 26.06.2004 | 10:38:14 | [+] |

Þessi ugla á vitorðsmann sem líkist kanínu og er sá á ferli hér hjá mér.

Nr. 4 | posted by: Ljúfa | 27.06.2004 | 2:56:51 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web