www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Allt of gott veður
Þriðjudagur, 22. júní 2004

Doddi á afmæli í dag. Hann er sex ára. Þegar ég óskaði honum til hamingju með afmælið í morgun ljómaði stóri afmælisstrákurinn minn. Hann er svo yndislegur.

Það verða líklega hamborgarar í matinn og súkkulaðikaka í eftirmat - með sex kertum. Audda.

Ég fór hinsvegar á Sólon í hádeginu að hitta Dórið. Dórið bauð þriðja aðila á samkunduna, mér óafvitandi.

Það er martröð að vinna inni í veðri eins og er í dag. Algjör martröð. Ég sit hér hálf ber að ofan og er að stikna, þambandi vatn eins og geðsjúklingur og finn bara ekki nógu þægilega stellingu fyrir fæturna upp á borði því buxurnar límast við mig og mér er eiginlega ekki stætt á að fara úr þeim ef einhver skyldi detta hingað inn.

What a day..


| anna | 14:31 |
comments

til hamingju með drenginn. smile

Nr. 1 | posted by: maja | 22.06.2004 | 15:27:47 | [+] |

Til hamingju með afmælið, Doddi! wave

Þetta veður er EVIL! EVIL I TELL YA

Nr. 2 | posted by: María | 22.06.2004 | 15:27:48 | [+] |

Til hamingju bæði tvö. clown wave

Nr. 3 | posted by: beggi dot com | 22.06.2004 | 15:39:40 | [+] |

Til hamingju med afmaelid til Dodda, knusadu hann rooooosalega mikid fra mer. Eg elska ykkur oll! Segdu svo Nonu ad koma ut med froskalappirnar! Og sundgleraugu, vid aetlum ad kafa i sjonum! (ekki ut a rumsjo sko, bara vid strondina) Thad er ogedslega gaman! pirate

Nr. 4 | posted by: Julia | 22.06.2004 | 18:14:26 | [+] |

Til hamingju með stóra strákinn þinn, Anna mín wave

Nr. 5 | posted by: Harpa | 22.06.2004 | 20:05:21 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web