Miðvikudagur, 23. júní 2004
Unz talar um að konur séu ekki fyrr búnar að skila köllunum sínum en þær fara að leita sér að næsta fórnarlambi.
iss.. segi ég nú bara. Fórnarlamb hvað?
Þegar ég sat á biðstofunni í dag las ég grein og innihald þeirrar greinar fjallaði um lífslíkur annarsvegar giftra karla og ógiftra. Kemur í ljós að giftir karlmenn eru afslappaðri, í betra líkamlegu ástandi og þeir lifa lengur.
Það var hinsvegar ekkert minnst á konur í þessu sambandi.
Ég var ekki að leita mér að fórnarlambi, er ekki að leita og ætla ekkert að leita. Andskotinn hafi það!
Það er hinsvegar ógjörningur fyrir mig að breyta þeirri staðreynda að brjóstin á mér virðast hafa slíkt aðdráttarafl, þrátt fyrir óaðlaðandi Vanilla sky umbúðir, að ólíklegustu karlmenn hugsa ekki um annað og áður en þeir vita af.. hafa þeir sent mér tölvupóst til að lokka mig til fundar við sig.
Það eru engin fórnarlömb. Ekki ætla ég að þvinga neinn til að gera eitthvað sem hann kærir sig ekki um.
Sem minnir mig á.. hvert í fjandanum setti ég nú handjárnin? hehehe