Sunnudagur, 13. júní 2004
Í dag, fyrir nákvæmlega þrettán árum - á fimmtudegi, varð blaðamaðurinn tvítugur. Sama dag trúlofuðum við okkur. Það var spáð rigningu en klukkan tíu um morguninn sögðu Jón og Gulli að það væri "mígandi bjart ennþá".
Það var mígandi bjart allan daginn. Þetta var einn besti dagur þessa sumars, veðurfarslega séð. Þegar ég skoða myndir frá þessum degi finnst mér ég vera svo mikill krakki, samt leið mér eins og ég væri rígfullorðin. Mér líður eins og ég sé yngri í dag en mér fannst ég vera þá.
Meikar það sense?
Ég held að það hafi verið mistök að gera þetta á afmælisdegi blaðamannsins. Fólk á að eiga afmælisdagana sína út af fyrir sig. Óþarfi að búa til nýtt tilefni til að halda upp á daginn, auk þess.. þá fellur alltaf annað hvort í skuggann af hinu og það er aldrei haldið upp á það. Það er kannski þess vegna sem... í öll þessi ár höfum við, held ég, aldrei haldið upp á þessa trúlofun neitt sérstaklega. Nema kannski eitt skipti sem ég man eftir.. minnir að við höfum samt verið að halda upp á afmæli blaðamannsins þá líka. - Með fyrirvara um götótt minni. Ég veit hinsvegar að í þau ár sem við höfum verið gift hefur hvorugt okkar gert nokkuð til að halda upp á brúðkaupsafmælið. Það var þögult samkomulag um það.
In retrospect held ég að svona hlutir skipti máli, að halda upp á svona afmæli.
Maður er reynslunni ríkari.
Það er svo skrítið.. að þó að ég geri sjaldan neitt með mitt eigið afmæli hef ég oftast gert mikið úr hans. Fundið upp á einhverju til að koma honum á óvart. Reynt að pakka inn gjöfinni þannig að það sé ekki séns að hann fatti hvað það er, þó að það sé eitthvað sem hann hefur langað í lengi. Mér finnst það svo gaman og það er fátt sem veitir mér eins mikla gleði og gleði í andliti þess sem ég elska. Ég man samt ekki til þess að ég hafi gert nokkuð í fyrra, annað en að baka súkkulaði köku og árið áður er líka blur.
Ég er allt of mikill sucker for love. Að öllum líkindum á ég eftir að fara illa þarna úti. Þá verður það bara að vera þannig. Ég er ekki viss um að maður geti breytt sér að þessu leyti og ég er ekki viss um að ég myndi vilja breyta mér þó ég gæti það.
Ég er ekki ánægð með bloggið mitt þessa dagana og veit ekki hvort ég á að vera að skrifa yfir höfuð. Ætti líklega að taka mér pásu því það sem kemur upp úr mér er ekkert nema tóm steypa, og var þetta þó slæmt fyrir. Ég þarf að fara oftar í bað.
Allavega.. til hamingju með afmælið Tóti.