Miðvikudagur, 16. júní 2004
Í gærkvöldi fór ég með börnin út að hjóla. Í dag fór ég í vinnuna. Í hádeginu fór ég á Viktor með Unu. Klukkan hálf tvö fór ég í skrúðgöngu með leikskólanum. Klukkan fjögur læsti ég mig úti. Datt ekkert betra í hug en að útrétta, fyrst ég var læst úti, svo ég keypti lakk á bílinn, helíum blöðrur handa krökkunum, hot pink nærföt og hvítan jakka handa mér. Klukkan sex kom ég heim og nágrannakona mín á fyrstu hæðinni hleypti mér inn með aukalyklinum sem hún geymir fyrir mig. Klukkan sjö keyrði ég út á Álftanes og klukkan 19:05 keyrði ég aftur í bæinn.
Það er óþolandi hvað það er lítið úrval af brjóstahöldurum í minni stærð. Ég er að hugsa um að kvarta yfir þessu til ritara Alþingis.
Klukkan 19:15 fór ég í Melabúðina og keypti í matinn. Klukkan 19:45 borðuðum við krakkarnir og klukkan 20:30 fór ég í bað. Klukkan 22:05 mátaði ég nærfötin, klukkan 22:10 skrifaði ég þessa færslu og ég spái því að ég fari að sofa klukkan 23:07.