29. júní 2004
Þriðjudagur, 29. júní 2004
Ég byrjaði daginn á því að fara í klippingu. Settist í stólinn og sagði: "gerðu mig eins og kvikmyndastjörnu".. -sem er nákvæmlega það sem Lilja gerði. Það var alveg komin tími á mig, fór síðast í klippingu 17. desember á síðasta ári.
Ég var steinhissa á því að hún skyldi muna eftir mér, hálfu ári eftir að hún klippti mig í fyrsta skipti. "Ef ég á að vera alveg hreinskilin þá man ég eftir þér vegna þess að mér fannst þú svo skemmtileg", sagði hún. Enda.. þegar ég hugsa út í það.. þá fór ég á kostum og gerði stólpagrín að sjálfri mér og köstunum sem ég tek þegar ég hætti að þola toppin á mér og fer í skæra-æði. Enda kom ég í emergency skíta-reddingu þegar eftir að ég hafði rankað við mér inná baði með skæri í höndunum og vaskinn fullann af hártoppnum á mér. Ég hafði víst klippt aaaaaðeins of mikið vinstra megin en hún faldi það eins og pró. Ég má ekki eiga skæri.
Fór þessu næst að hitta vinkonu mína yfir kókglasi og mat. Við ræddum daginn og veginn. Karlmenn, konur, börn, bleyjur, station bíla...
Klukkan tólf fór ég að ná í samningana, bréfið frá prestinum og setti þetta allt í umslag. Klukkan tvö var skrifað undir og klukkan korter yfir kvöddumst við blaðamaðurinn fyrir utan sýslumanninn. Þá fór ég í Kringluna að versla smá.
Ég hef þurft strong lead undanfarið, eitthvað til að halda mér við efnið. Í gær var ég spurð hvort ég gæti notað menn for sex? Ég er ekki viss um að ég gæti gert það, þó ég ætlaði mér það. Hef ekki ennþá hitt þann mann sem er ekki tilbúinn sjálfviljugur að love me.. and leave me.
Still.. the question remains..
Who's Zoomin Who?
Maður veit ekki. Hver veit hvað ég er að hugsa. Ég kem sjálfri mér stöðugt á óvart og í kvöld er ég að fara út að borða..