www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Well I'll be...
Fimmtudagur, 13. maí 2004

Ég sá Jude fyrst í Gattaca þar sem hann lék generally pissed gæja í hjólastól. Hann vakti strax athygli mína því ég fíla generally pissed menn og hann var svo flottur að það pirraði mig ekkert að hann væri í hjólastól. Auk þess var samkeppnin engin. Ewan McGregor var í aðalhlutverki.

Næst sá ég hann í The talented Mr Ripley og fannst hann nú ekkert svaka.. æi of mikið súkkulaði í þeirri mynd. Samt töluvert skárri en mótleikarinn hann þarna greppitrýni hvað sem hann heitir. Allt skárra en hann. OG reyndar.. þá fílaði karakterinn sem Jude lék jazz, sem var plús.

Þegar ég sá Enemy at the gates féll ég gjörsamlega fyrir Jude, það fór um mig straumur í ástarsenunni í bíó, og þegar ég sá A.I. vissi ég að ég yrði að fá Jude Law, helst með innbyggðu útvarpi.

En Jude Law var bara dagdraumur grasekkju blaðamanns. Blaðamanns sem lét sig dreyma um Angelinu Jolie. Quid pro quo.

Jude var giftur leikkonu og gerði ekki annað en að básúna það í blöðum og sjónvarpi að hann væri hamingjusamur af því er virðist eingöngu til að skaprauna mér. "Being single would be like drowning in chocolate" sagði hann einu sinni í viðtali. Breytir því ekki að hann er single og ekki dauður enn.

Vandamálið við Jude er samt eiginlega.. að hann er of fallegur. Þess vegna fílaði ég hann best í Gattaca og Enemy at the gates. Illa rakaðir karlmenn hafa alltaf höfðað soldið til mín og það hjálpar ef þeir eru búnir að velta sér soldið upp úr drullu og for líka. Ég skil ekkert í þessu en svona er ég.

Nú, þegar ég er orðin single eins og Jude, ákvað ég að láta verða af því og bjóða honum í kaffi og kleinur, sem ég ætla að kaupa í Melabúðinni. Ég veit að við erum að tala um Jude Law en það eru takmörk fyrir því hvað ég nenni að hafa fyrir hlutunum.

Ég sendi honum póst í gær sem var svohljóðandi:

"Dear Mr. Law.

I am a single mother of two and I live in Iceland. I'm usually at home between 12:05 and 12:55 every day at noon and I would really like to get down and dirty with you. If you have the chance, please come over and have some coffee and kleinur. If you want to see what I look like please go see www.anna.is.

I will be excpecting your arrival shortly.

Love,
Anna"

Í dag fékk ég póst til baka:

"Dear Anna.

After Cannes I'll be heading to the US. I want to drop by but I need you address. Please send more info.

Jude"

Ég sendi honum strax til baka:

"Darling Jude.

Just tell the taxi driver that you are meeting anna.is, they usually seem to know where I live. Look forward to seeing you.

Love,
Anna

ps. shower or bath?"

Hann var ekki lengi að svara:

"Shower or bath? You pick. I'm thinking.. tomorrow night, arround eight?"

Og ég var að senda frá mér rétt í þessu:

"Oh no! Not tomorrow at eight! I'm going out to dinner. What's your schedule for Saturday?"

Ég bíð spennt eftir svari.


| anna | 17:21 |
comments

Það eru einhverjar líkur á að þú rekist á hann á "Á næstu grösum". Það gerði ég allavega...

Hjálpaði honum meira að segja að útskýra hvað hann og fjölskyldan hefðu borðað við kassann.

I´m not kidding.

Nr. 1 | posted by: tótapála | 13.05.2004 | 20:10:25 | [+] |

Já hvað heldurðu að hann sé að gera hérna? Ég er að fá hann og krakkana í mat! Ég gleymdi að bæta við... hann svaraði: "I'll be there tonight then" tíhíhí

Helvítis rassgat að hann þurfti að draga krakkana með samt...

Nr. 2 | posted by: anna | 13.05.2004 | 20:26:47 | [+] |

...hef á tilfinningunni að þú hafir ekki keypt það sem ég sagði doubt .

geta Doddi og Jóhanna ekki bara lokkað krakkagemlingana hans inn í stóra nýja barnaherbergið sitt? pirate clown

colgate

Nr. 3 | posted by: tótapála | 13.05.2004 | 20:37:16 | [+] |

Ég hef það á tilfinningunni að þú hafir ekki keypt það sem ég skrifaði.

Jude er hér, með krakkana og ég er um það bil að fara að hafa það mjög huggulegt í kvöld. Enda eru krakkarnir ekki gamlir og fara líklega snemma að sofa. evil

toungue

Nr. 4 | posted by: anna | 13.05.2004 | 20:42:02 | [+] |

læturðu ekki bara krakkana fara út að leika? Kannski gætirðu fengið Lárus (var það ekki Lárus annrs?) nágranna til að taka nokkrar myndir af þeim úti á túni og svona - svo hann komi sér ekki fyrir á bak við stjörnukíkinn rétt á meðan þú og Jude farið að "borða kleinur" wink

(Geturðu svo sett inn nokkrar stunur inn á "sounds" í framhaldinu, bara svona fyrir samanburðarfræðimenn. Ég á original soundtrack frá fyrri kynnum. Fyrirfram þakkir) cool

Nr. 5 | posted by: Atviksorða-Anna | 13.05.2004 | 20:54:38 | [+] |

Hann er að koma krökkunum niður og ég er að setja upp vídeóvélina. Ef þetta er ekki Kodak moment..

Nei Lárus er nafnið á sópnum mínum.

Nr. 6 | posted by: anna | 13.05.2004 | 21:17:11 | [+] |

hmmm I´ll buy it.

Ég er reyndar sjálf á leið á djass-tónleika með Al Pacino í eftirdragi.

happy

Nr. 7 | posted by: tótapála | 13.05.2004 | 21:21:30 | [+] |

Gvööð...þú ert á túr!!! Annars, hann er alltof sætur til að það sé nokkuð undir honum og alltof frægur til að það sé nokkuð í höfuðkúpunni. What ever, hvað er að Ewan McGregor, er hann ekki alveg eins og sá sem við höfum alltaf átt, grófur, graður með ljóst hár og kartöflunef?

Nr. 8 | posted by: Úllen Dúllen | 13.05.2004 | 21:24:01 | [+] |

Ekki séns.. hann býr í íbúðinni við hliðina og kom yfir í kleinu kaffi rétt áðan, Jude var að fá tips hjá honum. Pacino fer aldrei út á fimmtudögum. This I know. cool

Ewan er hallæris gutti, þeir eru nú samt bestu vinir hann og Jude og nú veit ég heitasta slúðrið um Umu. ÚúúúúúÚÚÚ.. gaman gaman.

Þessir krakkar ætla ekkert að sofna þarna hjá honum annars..

Nr. 9 | posted by: anna | 13.05.2004 | 21:36:28 | [+] |

Nú skil ég af hverju honum lá svona á að fara frá mér áðan. Ekki það að það væri von á Tommanum heim í kvöldmat heldur var hann að fara til þín what
Jæja elskan, gangi þér vel. Þessir krakkar hans eru óþekktarormar og illa uppaldir - verða bara til vandræða. Þú getur kannski farið með hann á Gráa köttinn fyrst hann er í vandræðum á Grænum Kosti. Annars býr hú "Solla á Grænum Kosti" þarna rétt hjá þér sick
Góða skemmtun með drauma manninum Jude í kvöld ég er komin með draumaprinsinn minn. Hann er að vísu lítt þekktur fyrir kvikmyndaleik en er hinn mesti foli colgate

Nr. 10 | posted by: edda | 13.05.2004 | 21:51:21 | [+] |

Úps. Sorry. Ég sé að þú ert með saumaklúbb. Kíki bara við annað kvöld.

Nr. 11 | posted by: igor | 13.05.2004 | 21:59:34 | [+] |

Mig minnir að Ethan Hawke hafi verið með Umu Thurman nokkurri í aðalhlutverki. Hún er sko flott í Kill Bill myndunum vei vei!

Nr. 12 | posted by: Guðrún | 13.05.2004 | 22:55:56 | [+] |

Úff...

..details á morgun.

Nr. 13 | posted by: anna | 13.05.2004 | 23:15:43 | [+] |

This is the craziest thread I've read at a long time what! What are you up to Anna? Are you really the lunatic that you state you are?! I'm just sooo exhilarated colgate!

Nr. 14 | posted by: Matthias | 14.05.2004 | 8:23:15 | [+] |

Ég er spenntur. Tók mér frí í vinnunni í dag. Sæki smókinginn á eftir og fer síðan og sæki kökuna.

Síðan ætla ég að setjast fyrir framan sjónvarpið, uppáklæddur klukkan 12:00 og horfa á brúðkaupið og borða tertu. Þetta er bara eins og formúlan um helgar. Bara öðruvísi veitingar og öðruvísi outfit.

Nr. 15 | posted by: igor | 14.05.2004 | 8:31:06 | [+] |

Igor: Hvaða brúðkaup ertu að tala um?

Matthias: This is nothing ! wave

Nr. 16 | posted by: anna | 14.05.2004 | 8:41:35 | [+] |

Þetta sem Ólafur hætti við að mæta í.

Nr. 17 | posted by: igor | 14.05.2004 | 8:46:55 | [+] |

Ah ég skil. Já ég komst ekki heldur. Er sko að fara út að borða í kvöld..

Nr. 18 | posted by: anna | 14.05.2004 | 8:49:47 | [+] |

Bon appetit.

Nr. 19 | posted by: igor | 14.05.2004 | 8:50:50 | [+] |

Takk happy

Nr. 20 | posted by: anna | 14.05.2004 | 8:56:53 | [+] |

Anna! Þú ert að rugla saman Ethan Hawke og Ewan McGreagor! what

BIG difference.

Ethan Hawke er GEÐveikt sexy - mig dreymir um að enda með týpunni hans úr Reality Bites (by the way ein mesta snilld 10. áratugarins)

En góð saga hjá þér - ég bíð spennt eftir að heyra hvernig krúttið stóð sig í nótt

Nr. 21 | posted by: Bara ég | 14.05.2004 | 9:02:39 | [+] |

Sammála þessu með órakaða og ekki tandurhreina karlmenn.... það er nefnilega stór munur á Aragorn í miðri orustu og svo Viggo Mortensen sléttrökuðum og greiddum.

Nr. 22 | posted by: Gunna | 14.05.2004 | 9:21:37 | [+] |

Ójá! Viggo er eitt besta dæmið um þetta.

Nr. 23 | posted by: Bara ég | 14.05.2004 | 9:40:27 | [+] |

Bara ég: Ó.. ah.. mér finnst þeir báðir jafn ljótir. Ekki verra að við höfum sitthvorn smekkinn á karlmönnum, við komum þá ekki til með að bítast um þá! wink

Gunna: Æi vill maður bara ekki alvöru karlmann? Annars finnst mér þeir alltaf lang sætastir á morgnanna, með úfið hárið og einmitt.. með skeggrót.. Það er effect sem engin bangsi getur toppað.

Nr. 24 | posted by: anna | 14.05.2004 | 10:07:30 | [+] |

Já hjúkk maður - skárra væri það nú þegar við ofur-pæjurnar förum út á lífið eftir nokkrar vikur, brúnar, mjóar og sætar (ég stefni á að labba svo mikið úti sko, að maður hlýtur bara að grennast geðveikt) laughing

Ég skal amk gefa þér eftir Jude Law ef við rekumst á hann á Laugaveginum (er ég ekki fórnfús!)

Nr. 25 | posted by: Bara ég | 14.05.2004 | 10:15:06 | [+] |

Æi ekki segja Roseanne að ég sé í hverfinu, manneskjan er ekkert lítið uppáþrengjandi. silent

Nr. 26 | posted by: anna | 14.05.2004 | 11:46:05 | [+] |

Tell me about it! sour

Nr. 27 | posted by: ingo | 14.05.2004 | 13:23:12 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web