Miðvikudagur, 19. maí 2004
Þegar ég kom að sækja Dodda í gær í skólann ljómaði hann allur.
"MAMMA! SJÁÐU!" svo rétti hann mér blað með einföldum verkefnum sem hann var búinn að leysa. "Var þetta ekki gaman" spurði ég. "Júhú!" svaraði hann, sýndi mér svo verkefnin og sagði mér að það hefði sko verið "ekkert erfitt" að vinna þau. "En þetta er ekki að læra mamma" bætti hann við, "þetta er að leika sér". Sjís.. hvernig útskýri ég þetta fyrir honum?
Samt.. loksins hlakkar hann til að byrja í skóla. Ég er svo fegin.