Miðvikudagur, 12. maí 2004
Eftir rúman klukkutíma verður drullusokkurinn kominn á sinn stað, fyrir aftan hægra framhjólið. Mikið verður það góð tilfinning.
Í dag er útskrift úr skólanum. Byrjar snemma og endar seint. Ég er hræðilega lítið sofin, eyddi nóttinni í að bylta mér og reyna að sofna.. það tókst á endanum þegar ég var búin að ná mér í stórann, stórann bangsa innúr barnaherbergi sem ég kúrði við í alla nótt.
Af hverju er ekki hægt að kaupa risa stórann bangsa sem segir fallega hluti við mann þegar maður þrýstir á magann á honum?
Með rödd Sean Connery..