Fimmtudagur, 20. maí 2004
Ég á jafn erfitt með að vakna á nóttunni þegar ég á að gera það eins og ég á auðvelt með að vakna þegar ég á ekki að gera það. Þetta er hæfileiki.
En með þennan hæfileika í huga ákvað ég að vaka bara þangað til ég fer. Ég er svo mikill snilli. Notaði tækifærið og þreif alla íbúðina. Djöfull leiðis mér að horfa á það sem ég skrifa. Fæ ég ekki verðlaun fyrir mest þrifna bloggið? Eða er ég ekki verst? Ah.. who cares.
Letin brást mér gjörsamlega í kvöld. Algerlega og alveg. Ég hef ekki verið svona dugleg frá því ég tók slátur fyrir tíu árum. Skil ekki hvað kom yfir mig þá. Var eins og ég missti meðvitund og vaknaði innan um fullt af slátri. Veit ekki einu sinni hvernig ég borgaði fyrir það og þar sem ég kann ekki að búa til slátur var þetta gjörsamlega óætt með öllu. Eða ég ákvað það og henti þessu áður en ég smakkaði.
Æ nú lýg ég. Held ég sé komin með svefngalsa eða eitthvað. Enda búin að vaka helvíti lengi. Djöfull er ég vel á mig komin. Ég vissi alltaf að ég ætti að fara í herinn eða gerast læknir.
Ég á eftir one ace in the hole. Bað. Þegar ég verð orðin nógu framlág fer ég í bað. Temmilega kalt bað. Það klikkar ekki.
Tveir tímar eftir. Fer í bað eftir klukkutíma. Best að klára að pakka snöggvast...