www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Óvænt
Mánudagur, 17. maí 2004

Rétt áðan kom til mín maður í ákveðnum erindum en þegar hann kom inn þá sá ég svolítið sem ég þekki. Best ég taki það fram.. ég hef ákveðin talent.

Fór einu sinni á samkomu með blaðamanninum og sagði við hann eftir gleðina að það væri augljóslega eitthvað á milli tveggja aðila þarna sem voru þó harð giftir öðrum. Blaðamaðurinn hafði nú ekki mikla trú á því. Stuttu seinna kom hinsvegar í ljós... á mjög grafískan hátt.. að ég hafði rétt fyrir mér.

"Told you" sagði ég og glotti framaní blaðamanninn.

Ég efast ekki um að fleiri manneskjur en ég hafi þennan talent. Fyrir þá sem hafa hann ekki.. þá er þetta í augunum. Þau eru jú spegill sálarinnar.

Hvað um að. Ég þekki ekki þennan mann sem kom áðan, hef samt séð hann áður.. í hitt skiptið sem hann kom hingað sem var fyrir einhverju síðan.

Ég velti því fyrir mér hvort ég sé að senda frá mér einhver feremón eða hvort bronzið sem Edda gaf mér um helgina er að virka svona svakalega vel. Eitthvað er það.. ég spyr hann þá bara hvað varð til þess að hann gaf mér númerið sitt ef ég ákveð að nota það.

Þetta kom mér samt verulega á óvart. Sérstaklega þar sem flestir viðskiptavinir sem ég hef talað við í dag hafa verið eins og snúið roð í hundskjafti. Mætti halda að fólk tæki Eurovision svona nærri sér.


| anna | 16:44 |
comments

Fólkinu er sama um Júróvissjón. Málið er einfalt: allir vildu vera á Karl Johan í dag, veifa fánum og helíumblöðrum og borða pylsu með "reker". Það er Sautjándi Maí! colgate

Nr. 1 | posted by: Atviksorða-Anna | 17.05.2004 | 17:12:40 | [+] |

Ég hef líka svona innsæi... stundum!

Nr. 2 | posted by: Sigga | 18.05.2004 | 13:51:25 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web