www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Ótrúlegur andskoti
Sunnudagur, 09. maí 2004

Ég vaknaði klukkan níu í morgun og gat ekki sofnað aftur sama hvað ég reyndi. Ætli það heiti ekki að glaðvakna.

Það var gaman í gær. Mjög gaman. En svo fórum við á djammið. Ég sé að þetta er eitthvað sem... hvað á maður að segja.. hentar mér ekki? Kannski vegna þess að ég er orðin of gömul.. og kannski vegna þess að aðdáendahópur minn hefur yngst upp um allt of mörg ár.

Kannski þess vegna sem ég fór snemma heim í nótt þó ég hafi ætlað að vera úti til klukkan átta í morgun. Var búin að lofa Hörpu að blogga en langaði ekki til þess þegar ég kom heim. Ég blogga ekki í glasi. Á það ekki að vera boost for the moral þegar hávaxinn, myndarlegur og rétt rúmlega tvítugur strákur reynir að tæla mig með sér heim? Kannski er ég bara svona glötuð.. kann þetta ekki eftir margra ára hjónaband.

Kannski langar mig bara í eitthvað annað. Eitthvað sem varir lengur en eina nótt. Ég veit það ekki.

Ég laug reyndar til um aldur. Sagðist vera 33 en það rifjaðist upp fyrir mér áðan að ég er 32 ennþá. Ætli það séu margar konur out there á mínum aldri sem ljúga að þær séu eldri en þær eru? Óvart.. auðvitað.


| anna | 10:08 |
comments

Love actually. Fín mynd. Horfði á hana í gær. Stuttu seinna var ég staddur á Nasa. Settist við eitt borðið með hvítvínsglas í hönd. Sötraði. Horfði í kringum mig. Á fólkið. Ég var búinn að sitja drykklanga stund þegar dökkhærð kona í litlum bol, leðurpilsi og netsokkabuxum snéri sér skyndilega að mér. "Áttu eld" sagði dökkhærða konan. "Ha...ég. Nei, ég reyki ekki" náði ég að muldra. "Reyndar ekki ég heldur" sagði hún og bjóst til að labba í burtu þegar hún snéri sér eitt augnablik við og sagði. "Getur verið að ég þekki þig?" Mér vafðist tunga um tönn. "Ha...mig. Held ekki."

Þegar ég labbaði út stóð dökkhærða konan og talaði við hávaxinn, myndarlegan mann um tvítugt. Lærdómur sögunnar er sá að netsokkabuxur geta látið miðaldra menn missa málið.

Nr. 1 | posted by: igor | 9.05.2004 | 16:46:49 | [+] |

Hehe - þú hefur greinilega meiri viljstyrk en ég þegar það kemur að rúmlega tvítugum, myndarlegum karlmönnum angel segi þér betur frá ævintýrum helgarinnar í pósti á eftir - ég er þvílíkt að gefa vinkonum mínum nóg að slúðra á þessa dagana wink

Nr. 2 | posted by: Bara ég | 9.05.2004 | 16:53:55 | [+] |

Ég man aldrei hvað ég er gömul. Það er minn veikleiki.

Igor: Ég var ekki á Nasa. Ef ég hinsvegar hefði verið á Nasa. Hefðir þú gefið þig fram? Ég hefði ekki farið framhjá þér þar sem ég lýsti í hverju ég var.

Bara ég: angel

Nr. 3 | posted by: anna | 9.05.2004 | 17:25:11 | [+] |

Ég var 42 ára tvö ár í röð. Áttaði mig allt í einu á því, rétt fyrir afmælið mitt eitt árið, að það var víst 42 ára afmælið sem var í aðsigi - og ég sem var búin að standa í þeirri trú í næstum heilt ár, og halda því fram við alla sem spurðu, að ég væri 42. Þannig að ég upplifði eiginlega aldrei að vera 41 árs. embarassed

Nr. 4 | posted by: Nanna | 9.05.2004 | 17:40:32 | [+] |

Þetta er merkilegur kvilli. Samt ekki svo mjög. Er það skrítið að maður gleymi þessu? Það er ekki eins og þetta skipti máli og maður hugsi ekki um annað. happy

Nr. 5 | posted by: anna | 9.05.2004 | 18:23:13 | [+] |

hvaða hvaða.. missa málið hvað? Það er ekki eins og ég bíti frá mér. A.m.k. ekki fast.. wink

Nr. 6 | posted by: anna | 9.05.2004 | 18:30:40 | [+] |

Netsokkabuxurnar, anna. Netsokkabuxurnar. Sjá komment tvö.

Nr. 7 | posted by: igor | 9.05.2004 | 18:32:24 | [+] |

Já þú meinar.. what

Not to worry. Ég þori ekki að fara út úr húsi í netsokkabuxum í bráð.

Nr. 8 | posted by: anna | 9.05.2004 | 18:38:24 | [+] |

Mér líður strax betur.

Nr. 9 | posted by: igor | 9.05.2004 | 18:42:13 | [+] |

eða verr.

Nr. 10 | posted by: igor | 9.05.2004 | 18:42:49 | [+] |

Ég er einmitt í miklu stuði fyrir vatn. thumb up

Nr. 11 | posted by: anna | 9.05.2004 | 20:19:12 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web