www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Maðurinn með hundinn
Mánudagur, 17. maí 2004

Oh ég hitti manninn með hundinn áðan. Þvílíkt krútt þessi hundur. Hann, hundurinn, vildi ekki koma inn í húsið og þar sem maðurinn var með báðar hendur fullar tók ég hundinn upp og hélt á honum inn.

úúúÚÚÚúúú hvað hann er mikil dúlla! Engin smá hjartsláttur í svona litlu dýri. Ég er ekki frá því að hann sé soldið hrifin af mér. Hundurinn sko. Held reyndar að þetta sé "hún" en samt heitir hann (hundurinn) Títan. Eða eitthvað svoleiðis. Ég er viss um að hann sagði Títan.

Ég held að ég hafi ekki séð neitt eins sætt eins og þegar hann hljóp upp stigana. Hvert þrep er hærra en hundurinn svo litla dýrið þurfti að hoppa upp fyrir sig í hvert sinn sem hann tók þrep.

Ég er viss um að hann leyfi mér að fá hann lánaðann einn daginn.

Lifi sjálfsblekkingin!

Já. Á forsíðunni lítur út fyrir það að þessar rósir hafi verið frá henni Júlíu systur. Ég kem alveg af fjöllum. Vissi ekki að hún hefði gert neitt á minn hlut nýlega og er ekkert fúl út í hana. Best að spila pókerfeisið þegar hún kemur.. hver veit hvað hún hefur verið að bralla...

Annars má ég hvort sem er ekkert vera að því að pæla í einhverjum leikurum núna. Ég er að fara að græja mig fyrir útlandaferðina.

Ég er komin með lista af dóti sem ég verð að taka með mér.

Bæði börnin
Naglalakk
Naglalakkeyðir
Bómull
Naglabanda krem
Bikiní
Sólarvörn
Gameboy + leiki

Er ég að gleyma einhverju?


| anna | 20:40 |
comments

neinei, tannburstann kaupir maður bara úti! reyndar kannski vissara að kippa farseðlinum og passanum með... clown

Nr. 1 | posted by: Hildigunnur | 17.05.2004 | 21:06:52 | [+] |

VISA thumb up

Nr. 2 | posted by: beggi dot com | 17.05.2004 | 21:50:41 | [+] |

Já hvernig læt ég.. VISA má ekki vanta og ég er að bræða það með mér hvort ég eigi að nenna að fara með rafmagnstannburstann með mér. Nennir maður því?

Ég er allavega búin að ná í fullt af ferðatöskum undir allt naglalakkið.

Nr. 3 | posted by: anna | 17.05.2004 | 22:48:49 | [+] |

JÖMINN! Ætli það sé ekki hægt að fá naglalakk þarna úti á svakalega góðu verði?

Nr. 4 | posted by: anna | 17.05.2004 | 22:49:36 | [+] |

Naglaklippur?

Nr. 5 | posted by: afi | 18.05.2004 | 8:36:25 | [+] |

... eða er það eins og að fara með kaffi til Brasilíu, sand til Sahara og sóleyjar á heimatúnið? doubt

Nr. 6 | posted by: Atviksorða-Anna | 18.05.2004 | 9:25:38 | [+] |

Eins og allir sannir Íslendingar tekurðu auðvitað með þér kokteilsósu. smile

Nr. 7 | posted by: Þorkell | 18.05.2004 | 9:31:31 | [+] |

Hvusslax, kokteilsósu?? Þá er ég ekki sannur Íslendingur, ég er meira fyrir tómatsósu.

Hver er José Luis Rodrigues? Ég kem af fjöllum.

Takk afi, það hefði nú verið ljóta hefði ég klikkað á naglaklippum!

Nr. 8 | posted by: anna | 18.05.2004 | 9:36:03 | [+] |

þetta fer nottlega soldið eftir áfangastaðnum. ef þú ert að fara til spánar eða annarra sólarstranda (eins og mér sýnist) gæti verið gáfulegt að tékka á moskítóvörnum, svona sem gefa frá sér hátíðnihljóð, annað hvort hér eða áður en þú ferð. gæti sparað börnunum þínum og þér mikinn kláða og pirring. gnasher

Nr. 9 | posted by: maja | 18.05.2004 | 9:56:09 | [+] |

... annað hvort hér eða áður en þú ferð... hvað er eiginlega að mér??!!

Nr. 10 | posted by: maja | 18.05.2004 | 9:56:50 | [+] |

Ég hitti José Luis - eða Hossa eins og vinir hans kalla hann - um svipað leiti og þú kynntist Jude. Mér er ekkert sárt um að lána þér hann tímabundið. Tímabundið, mind you

Nr. 11 | posted by: Atviksorða-Anna | 18.05.2004 | 10:23:20 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web