www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Internal dialouge ala Dr. Phil
Sunnudagur, 09. maí 2004

Blaðamaðurinn droppaði í heimsókn í kvöld og við fórum að tala um fíknir. Hans stærsta fíkn er vinnan þó að hann sé með margar minni fíknir sem geta þó valdið miklum skaða. Hann sagði mér hinsvegar að mín stærsta fíkn væri ... heimasíðan mín.

Ég neitaði þessu en hann brá fyrir mig alka-í-bata fótnum og spurði: "Ertu í afneitun?". Auðvitað er ég í afneitun. Ég hef aldrei neitað því! Ég neita hinsvegar öllu öðru og það staðfastlega.

Nú, þegar hann er farinn, er mér óhætt að velta því fyrir mér hvort það geti verið rétt og satt.. að ég.. Anna.. ég sjálf.. ÉG sé háð heimasíðunni minni?

Er ég bloggfíkill?

Ef ég er bloggfíkill þá er ég ekkert sérstaklega ánægð með það. En hvað er fíkn? Hvernig get ég sannreynt hvort ég er fíkill eða bara iðinn bloggari. Ég fór strax að leita á netinu og fann þetta:

"addiction - being abnormally tolerant to and dependent on something that is psychologically or physically habit-forming (especially alcohol or narcotic drugs)"

Þá er það spurningin. Er ég óeðlilega háð því að blogga og hefur það áhrif á hegðun mína?

Látum okkur sjá.. Af hverju blogga ég? Hmm.. líklega vegna þess að mér finnst það gaman.

Af hverju finnst mér það gaman? Líklega vegna þess að á heimasíðunni minni getur hvað sem er gerst og ég stjórna öllu.

Af hverju getur allt gerst á síðunni og af hverju finnst mér gott að stjórna öllu? Það getur allt gerst vegna þess að þannig er lífið skemmtilegra og mér finnst betra að stjórna öllu vegna þess að ég er control freak? Nei.. ég er ekki control freak. Afneitun? Nei. Já. Nei. Já. Nei...

Hef ég hætt að blogga? Já það hefur gerst og þá leið mér ekkert illa yfir því. Það er the god honest truth. Ég hafði bara mikið að gera.

Langar mig að hætta að blogga? Ég hef aldrei velt því fyrir mér að hætta að blogga, hef ekki séð ástæðu til að halda mér við einn bloggstíl frekar en annan og ætla ekki að hætta að drekka sumar tegundir. Já... eða þú skilur.

Gæti ég skrifað færslu og sleppt því að publisha? Ég geri það oft og iðulega. Sumt sem ég skrifa er ekki birtingarhæft.

Hræðist þú aðstæður þar sem þú kemst ekki í tölvu til að blogga? Nei ekkert sérstaklega en ég hræðist hinsvegar viðvarandi svoleiðis aðstæður eins og t.d. ef mér yrði rænt og myndi enda hlekkjuð við staur í litlu héraði í Indlandi þar sem hvorki rennandi vatn né rafmagn fyrirfyndist. Það fyndist mér hræðileg örlög. Sérstaklega í ljósi þess að ég veit að það verður líka illgjörn geit bundin við sama staurinn. Ég hef séð þetta í draumi.

Ef engin kommentar á færslurnar þínar, er dagurinn þá ónýtur? Já, ég sýg puttann og græt.

Myndi þér líða vel ef þú færðir tölvuna inn í svefnherbergi þannig að hún yrði ekki eins central í íbúðinni eins og hún er núna? Nei, mér myndi líða illa. Ég vil geta fylgst með henni helst öllum stundum. Ég vil henda spamminu jafn óðum.

Hefurðu sleppt því að kveikja á tölvunni þinni í 24 tíma samfleytt s.l. sex mánuði? Já reyndar hef ég sleppt því. Ég er auðvitað nettengd í vinnunni..

Hefurðu fengið móral eftir bloggfærslu? Já oft og iðulega þegar ég sé að fólk les allt annað úr færslunni en það sem ég var að meina.

Dreymir þig blogg? Nei það hefur aldrei gerst. En mig hefur dreymt hvítar dúfur með skitu.

Hefur þú framið lögbrot til þess eins að komast fyrr í nettengda vél til að geta bloggað? Ég kannast ekki við það.

Hefur þú hegðað þér á einhvern hátt til þess eins að geta bloggað um það? Nei, of mikið af ímyndunnarafli. Þarf þess ekki.

Ef þú misstir hendurnar í slysi, myndir þú leita til þjóðarinnar í landssöfnun fyrir hjálpartæki svo þú getir bloggað? Ég bara hreinlega veit það ekki. Gæti trúað mér til að kaupa mér derhúfu sem hefur svona hulstur fyrir bjór, slöngur og tilheyrandi og gera tilraun til að drekka mig í hel, líklega. Alveg óháð blogg getu.

The question remains.. er ég bloggfíkill?


| anna | 22:11 |
comments

Anna mín, ég held að mergurinn málsins sé að eitthvað sé til sem heitir netfíkn. Ég er haldin slíkri fíkn. Fór á spítala í fjóra daga og lá eins og sveskja, sljó og illa haldin eftir aðgerð. Hugsaði samt allan tímann að gott væri að hafa nettengingu til að geta fylgst með því sem væri að gerast í heiminu og lífi fólks, sent tölvupóst og fylgst með póstinum mínum heima og í vinnunni.
Ég verð alveg friðlaus hérna heima ef tengingin bilar af einhverjum orsökum og ekki blogga ég.
Keðja Begga

Nr. 1 | posted by: Begga | 10.05.2004 | 1:02:10 | [+] |

Það er ómögulegt að vita af þér volanadi heima. Lofa að kommenta á lalar færslur héðanífrá.


Nema auðvitað ég hafi annað að gera evil

Nr. 2 | posted by: beggi dot com | 10.05.2004 | 1:13:14 | [+] |

Shit hvað ég er fullur, þessi vodkaflaska þarna gerð gæfumuninn.

Þetta átti að vera:

Það er ómögulegt að vita af þér volandi heima. Lofa að kommenta á allar færslur héðanífrá....

embarassed

Nr. 3 | posted by: beggi dot com | 10.05.2004 | 1:15:46 | [+] |

Begga: Ég viðurkenni aldrei að ég sé netfíkill. Aldrei, aldrei, ALDREI!!

hehehe

Beggi: Við skulum hafa það á hreinu að ég vola ekkert. Ég græt fögrum tárum og snýti mér í bróderaðan hankí öðru hvoru yfir sultu pottunum. En ég er sterk og at the end of the day.. þá þurrka ég mér í svuntuna og heldur áfram eldhússtörfunum. Í fullkominni afneitun.

Nr. 4 | posted by: anna | 10.05.2004 | 8:11:51 | [+] |

Stóra spurningin er hvort netfíkn sé til eða yfir höfuð slæm og ef hún er til hvort hægt sé þá að líkja henni við áfengisfíkn eða dópfíkn.

Er t.d. til eitthvað sem heitir listafíkn? Eða dagbókafíkn? Erum við bara ekki að tapa okkur í einhverjum meðalkúrfum?

Nr. 5 | posted by: Þorkell | 10.05.2004 | 9:03:45 | [+] |

mér hefur oft verið sagt að fjöldi lasta væri konstant. þannig að ef þú losar þig við einn löst færðu bara annan í staðin. bloggfíkn er ekki slæm, og á meðan ertu laus við einhvern ábyggilega verri löst colgate
það gæti nú samt verið svolítið gaman að skoða hvað bloggfíklar eiga sameiginlegt til að kanna hvort einhver ákveðin mann/kven-gerð sé líklegri til að falla... doubt

Nr. 6 | posted by: maja | 10.05.2004 | 9:26:26 | [+] |

Ó nei. Ég neita að trúa því. Ertu að meina að ég komi alltaf til með að hafa þessar 79 fíknir í einu formi eða öðru? Það er hræðilegt! drunk

Nr. 7 | posted by: anna | 10.05.2004 | 9:30:44 | [+] |

Ég veit bara að ég fæ alveg upp í kok annað slagið af þessum netskrifum, það tekur bara svo mikinn tíma frá manni að lesa þetta allt. En svo hugsa ég: hvað ætti ég svo sem að vera að gera annað? Vaska upp og hvíla með því uppþvottavélina? Þurrka af? Ahahahahahahahah... ahhtjú. Ég er að lesa skrif fólks sem ég þekkti ekki neitt, en er allt í einu farin að skipta mér af lífi þeirra í formi kommenta. Stundum er maður bara að blása eitthvað bull, er þá búinn að fá nóg af því að lesa endalaust og vill fá að vera með í skrifunum. En oftar en ekki fara hugrenningar manns gjörsamlega út í tómið - engin virðir mann svars -nema Anna.is smile Þú ert alltaf til í að svara bullinu í okkur öllum, og talar jafnvel um að við séum að halda í þér lífinu þessa dagana. Kannski ekki skrítið að x-ið segi þig haldna bloggfíkn, það er jú ákveðin fíkn fólgin í því að vilja láta sér líða vel. Ha?

En eru kommentin eins og redding fátæka mannsins í samanburði við bloggin? Bloggin eru þá "æðri", gefa tóninn, og kommentin ætluð þeim sem kunna ekki að setja upp síðu. Eða eins og ég - á enga vini sem myndu nenna að lesa síðu frá mér eða láta frétt þess efnis út ganga.

En ég er fegin að ég hrasaði inn á síðuna þína í fyrra. Hugsaðu þér að ég hefði fundið heimilsbókhaldið á netinu eins og ég var að reyna, þá hefði ég kannski eytt frítíma mínum síðan þá í að leggja saman og draga frá! oh no!

Og - plúsinn í þessu öllu er - ég er farin að halda dagbók fyrir sjálfa mig. Nokkuð sem ég efast um að ég hefð'i farið að gera ef ég hefði ekki verið farin að fikta í lyklaborðinu in the first place. En, nota bene, dagbókin er Kolbrún Bergþórsdóttir style: for my eyes only wink

Nr. 8 | posted by: Atviksorða-Anna | 10.05.2004 | 10:35:11 | [+] |

Ég skil þig Maja.

Já og hrós. Ég er alltaf að hrósa sjálfri mér. Daginn út og daginn inn. Ég er frábær, ég er æðisleg, ég er djúpvitur, ég er skemmtileg. Verst hvað ég er svakalega heyrnalaus.. silent

Nr. 9 | posted by: anna | 10.05.2004 | 11:52:19 | [+] |

hey, líttu á kommentakerfið hjá þér kona. þú hlýtur að hafa ýmislegt til brunns að bera ef þér tókst að koma á svona krassandi aktívu spjallsamfélagi. fyrir utan fólkið sem les þig en eru ekki kommentatýpurnar.
þó þú sért heyrnarlaus á sjálfa þig ertu nú vonandi ekki blind á hvað þetta segir þér alltsaman... happy

Nr. 10 | posted by: maja | 10.05.2004 | 11:57:14 | [+] |

Ég les, en er ekki kommentatýpan. Ákvað samt að segja halló núna - halló! Það er nú kannski lágmarks kurteisi enda kíki ég við daglega og hef gert i langan tíma.

Nr. 11 | posted by: María | 10.05.2004 | 12:09:53 | [+] |

Ef þú ert haldin bloggfíkn þá er það af hinu góða því það gleður marga . Fíkn í hinu viðurkennda formi hefur slæm áhrif á mann sjálfan og yfirleitt fleiri aðila. Hefur blogg"fíkn" þín slæm áhrif á fjölskyldu þína? Gráta börnin þín þegar þú kýst frekar að blogga en vera með þeim? Osfrv. Neita að viðurkenna að þú sért bloggari af fíkn heldur frekar af Guðs náð ef Guð er til.. embarassed

Nr. 12 | posted by: Meinvill | 10.05.2004 | 12:33:02 | [+] |

andans fátækt er það sem ég meina, held ég. Ég er bitur, gömul kelling, og allir eru óvinir í verinu. Eða voru þeir ógiftir?

Nr. 13 | posted by: Atviksorða-Anna | 10.05.2004 | 13:00:29 | [+] |

sko! Þetta er BS-ið sem ég talaði um ofar. Sorrí, waste of space. Eða var það Ace of Base?

Nr. 14 | posted by: Atviksorða-Anna | 10.05.2004 | 13:01:50 | [+] |

Ace of Base kom nú með ágætis smelli..

Börnin mín? Ja.. þau kvarta nú stundum yfir veru minni við vélina en þá er ég nú oftast að læra eða gera eitthvað annað en að blogga. happy

Nr. 15 | posted by: anna | 10.05.2004 | 13:05:34 | [+] |

Ég vil bæta inn í þetta bloggfíknarpróf þitt (sem er annars í alla staði hið ágætasta og mun eflaust hjálpa mörgum að komast að niðurstöðu um það hvort þeir eigi að leita sér aðstoðar.)

Hefurðu vaknað daginn eftir bloggfærslu með sektarkennd, flýtt þér að eyða færslunni og vonað að enginn hafi lesið hana?

Hafa vinir og kunningjar reynt að fá þig til að hætta að blogga?

Hefur bloggið skaðað mannorð þitt?

Hafa börnin þín eða aðrir nákomnir verið lagðir í einelti vegna bloggskrifa þinna?

Hefur þú ítrekað ákveðið að hætta að blogga, þurrkað síðuna út en byrjað svo aftur nokkrum dögum síðar?

Hefur þú misst úr vinnu, vanrækt mikilvæg verkefni, heimilið eða fjölskylduna, vegna bloggáráttu þinnar?

Úff, nú er ég hætt, ég sé það núna að ég er greinilega í áhættuhópi.

Nr. 16 | posted by: eva | 10.05.2004 | 16:20:24 | [+] |

Látum okkur nú sjá...

Hefurðu vaknað daginn eftir bloggfærslu með sektarkennd, flýtt þér að eyða færslunni og vonað að enginn hafi lesið hana? Nei, merkilegt nokk.

Hafa vinir og kunningjar reynt að fá þig til að hætta að blogga? Nei.

Hefur bloggið skaðað mannorð þitt? Nei það held ég ekki. Nema kannski hjá fólki sem trúir því í alvöru að ég geti flogið og að ég sofi á hvolfi á ljósastaurnum við Melabúðina.

Hafa börnin þín eða aðrir nákomnir verið lagðir í einelti vegna bloggskrifa þinna? Nei, eða.. ekki svo ég viti.

Hefur þú ítrekað ákveðið að hætta að blogga, þurrkað síðuna út en byrjað svo aftur nokkrum dögum síðar? Nei.

Hefur þú misst úr vinnu, vanrækt mikilvæg verkefni, heimilið eða fjölskylduna, vegna bloggáráttu þinnar? Ja.. ég hef ekki misst úr vinnu og ég hef nú varla vanrækt mikilvæg verkefni.. þ.e. ekki þannig að það hafi skipt máli. Heimilið? Nei það er nú aðallega skólinn sem fær mig til að vanrækja það. Fjölskylduna? Nei í rauninni ekki.

Ég held að ég sé miklu eðlilegri en almennt er reiknað með! doubt

Nr. 17 | posted by: anna | 10.05.2004 | 16:37:14 | [+] |

Ekki nema þú sért bara orðin svona svakalega langt leidd að þú sjáir ekki hættumerkin og lifir í stöðugri sjálfsblekkingu. wink

Nr. 18 | posted by: Þorkell | 10.05.2004 | 18:12:35 | [+] |

hehehe Það gæti líka verið... thumb up

Nr. 19 | posted by: anna | 10.05.2004 | 18:16:03 | [+] |

Dísess, þetta er sjálfhverfasta bloggfærsla sem ég hef séð og er þó blogg í eðli sínu sjálfhverf!

Nr. 20 | posted by: Þór | 12.05.2004 | 13:52:18 | [+] |

...og já, þú ert bloggfíkill! Ekki spurning.

Nr. 21 | posted by: Þór | 12.05.2004 | 13:53:07 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web