Sunnudagur, 02. maí 2004
Ég er royally fucked up. Var búin að gera þessa fínu SVÓT greiningu og markaðsgreiningu sem ég átti eftir að pikka inn í tölvuna, en finn bókstaflega hvergi. Hélt fund með valinkunnum aðilum fyrir löngu, hafði ritara og alles. Allt skrifað samviskusamlega niður í bók og ég fann eina slíka áðan.. en það stendur ekkert í henni. Ekki stafur. Ég var farin að halda að mig hafi dreymt þetta.. en er búin að hringja í aðila sem var viðstaddur þennan gjörning og nei.. þetta var ekki draumur. Það var fundur, það var bók og það var mökkur af upplýsingum skrifaður niður í hana.
Ég er búin að rústa öllu í leit minni að þessari greiningu en það er eins og hún hafi gufað upp. Íbúðin lítur út eins og eftir innbrot.
Ég hélt að það væri ekki til betra copy en hardcopy.
Á ég að skálda nýja svót greiningu og markaðsgreiningu upp úr götóttu minni mínu og skila inn rusli? Eða á ég að skila teaser af viðskiptaáætlun?