www.anna.is
ravings of a lunatic
Historical truth may be manipulated in some cases for dramatic purposes.
ravings of a lunatic movie hall of fame ferilskrá
Gleði
Miðvikudagur, 12. maí 2004

Mikið hriiiiiikalega var þetta gaman.

Fátt skemmtilegra en fullt af konum á öllum aldri að drekka frá klukkan tvö og frameftir. Ég hætti reyndar í bjórnum klukkan sjö en skemmti mér samt konunglega þrátt fyrir vatnsþamb, enda stendur til að fara aftur út að borða á föstudaginn með vinnunni og ég er þreytt og illa sofin svo stíf drykkja hefði ekki verið mjög ráðleg.

Annars var þetta var akkúrat það sem ég þurfti á að halda.

Mér finnst hinsvegar glatað að ég sé byrjuð á blæðingum eftir fimm ára hlé sem fékkst með hjálp þess undurs sem hormónalykkjan er.. og þar sem ég er nýbúin að kaupa dekk undir bílinn hef ég ekki efni á að kaupa nýja hormónalykkju "undir" mig.

Ef ég hefði séð þetta fyrir.. hefði tekið bílinn af númerum.


| anna | 23:05 |
comments

Æði gæði, til lukku með úrskriftina Anna en blessuð vertu ekki að hafa áhyggjur af blæðingunum. Eru ekki til svo hrikalega þróuð dömubindi í dag, með vængjum, spoilerum, bremsum og slíka rakadrægni að maður tekur ekki einu sinni eftir því að maður sé á túr. Þú ættir kannski að kynna þér málið, ég meina mikil þróun á fimm árum.

Nr. 1 | posted by: Þórlaug | 13.05.2004 | 0:49:37 | [+] |

Nei hafðu bílinn áfram á númerum. Nú þegar þú ert komin á almennan markað þá er lykkjan hvort sem er ekki rétta aðferðin.

Nr. 2 | posted by: Organistinn | 13.05.2004 | 7:25:07 | [+] |

Spurning um sponsera happy
Hafðu (drauminn um) mjúka bangsann með fullt af seðlum toungue

Nr. 3 | posted by: Harpa | 13.05.2004 | 8:04:24 | [+] |

Þórlaug: All in all er hormónalykkjan miklu ódýrari og less mess or fuss, þrátt fyrir vængi og aðrar tækninýjungar. Ég hef séð nokkrar auglýsingar á s.l. árum! Ég er skít hrædd við þetta vængjadót og ætla bara að nota pampers.

Organisti: Almennan markað? Ég er ekkert á honum. Ég er á mjög exclusive markaði.. ætla bara að vera með Jude Law. Auk þess er hormónalykkjan ekki getnaðarvörn í mínum huga. Hún er túrvörn.

Harpa: Þú veist alveg að draumar eru ekki veruleiki. Auk þess held ég að tuskudýr hafi takmörkuð fjárráð..

Nr. 4 | posted by: anna | 13.05.2004 | 8:09:31 | [+] |

laughing laughing laughing

Nr. 5 | posted by: Þórlaug | 13.05.2004 | 8:20:36 | [+] |

Skil þig vel. Þarf á svona kvöldi að halda. cool
Djö... vildi ég að lykkjan hefði þessi áhrif á mig. Væri líka til í svona leg-brottnám en það þarf vís læknisfræðilegar ástæður fyrir því gnasher Ég þakka bara fyrir álfabikarinn meðan ég þarf að þola þetta.

Nr. 6 | posted by: Kristjana | 13.05.2004 | 11:42:09 | [+] |

Sko á meðan mér er illa við dömubindi með vængjum fæ ég nú bara kvíða og andnauð þegar ég hugsa um álfabikarinn! doubt

Dísus. Mér finnst að hormónalykkja ætti að vera staðalbúnaður hjá konum sem hafa eignast barn... getur ekki einhver talað við hann Davíð og látið hann setja það í lög? colgate

Nr. 7 | posted by: anna | 13.05.2004 | 12:00:01 | [+] |

Anna! Mæl þú manna heilust! thumb up

Það ættu að vera mannréttindi kvenna að losna við blæðingafárið, verkina og allt því tilheyrandi eftir að óskabörnin eru fædd... eða fyrr, fyrir þær konur sem sjá enga ástæðu til að fæða börn í heim.

Nr. 8 | posted by: hugskot | 13.05.2004 | 13:08:58 | [+] |

Ég var búin að gleyma helv verkjunum.. sour

Nr. 9 | posted by: anna | 13.05.2004 | 13:45:23 | [+] |

Af því að okkur þykir vænt um Pollýönnu þá eru fullt af kostum við það að vera á blæðingum. Manni leyfist meira, eiginmenn kunna fá svör við þeirri afsökun að maður sé með túrverki og þessvegna megi maður þetta og þetta en hann ekki hitt.

Svo er annað, það getur oft verið helvíti uppfinningasamt kynlífið hjá manni þá daga... þegar aðrar aðferðir þarf að reyna. Ergo, getur bara verið safaríkir 5 dagar mánaðarins á parkódín og góðum skóm. Mundu, þetta líður allt hjá.
Kveðja

Nr. 10 | posted by: Úllen Dúllen | 13.05.2004 | 14:22:22 | [+] |

Annars er ég svo meðvirk, ég get svarið ég fæ túrverki við að lesa þessa færslu og kommentin. Ég fékk líka þvílíkt sting í magann þegar ég las færsluna þína um heimsóknina til prestsins.. Ég verð nú samt að segja það að ég man þegar ég labbaði út frá Dómkirkjupresti í sömu erindagjörðum seint á síðustu öld, þá man ég að ég hugsaði: æ, hvað það hefði verið gott að hitta þennan mann fyrir nokkrum mánuðum þegar við áttum ennþá sjéns...

Nr. 11 | posted by: Úllen Dúllen | 13.05.2004 | 14:28:09 | [+] |

Æ það er nú soldið takmarkað hvað maður gerir einn heimahjá sér þó maður hafi fimm daga til þess.. drunk

Auk þess hef ég aldrei borið við hausverk sem afsökun. Ég fer bara í bað og þá er hann farinn. -Hausverkurinn... wink

Svo finnst mér kynlíf líka lækna ótrúlegustu kvilla. angel

Nr. 12 | posted by: anna | 13.05.2004 | 14:35:35 | [+] |

Ég er í sömu kreppu! Blæðingar hófust að nýju í dag eftir 9 mánaða meðgöngu og rúmlega fimm mánaða brjóstagjöf. Ég er FÚL. Barnið er ennþá eingöngu á brjósti svo þetta er svindl dauðans gnasher
Náði þó að grafa upp bindi, nú annars hefði ég þurft að grípa til pampers active fit 5-9kg. Hef reyndar ekki mátað svo ég er ekki viss um að þær hefður passað þar sem ég er ekki innan þyngdarmarkanna. En það er franskur rennilás á þeim svo ég hefði mögulega getað fest hann í einhverja fellinguna wink
Hormónalykkjan er ekki blæðingalaus fyrir allar konur. Ég reyndi í 13 mánuði gafst þá upp á tíðarhringnum sem var 3 vikur blæðingar og 1 vika frí sick
Álfabikarinn er heillandi kostur sem ég er vel til í að prufa og sennilega ódýrari en flest annað.
Ég væri svo sannarlega til í heitt bað núna thumb up

Nr. 13 | posted by: edda | 13.05.2004 | 17:12:44 | [+] |


recent ravings
recent comments
monthly archive

links
blogs
links - web